Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 17

Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 17
Orfi Gufis til pín Umþenking og samræður í tilefni stúdentamóts 1975 Jesús í Laugardalshöll Ungt fólk hefur mælt sér mót við Jesúm Krist úti á íslandi. Dag einn er mesti salur landsins nær setinn. Og flest er það fólk komið um langan veg. Er Jesús þá á íslandi? Hann hét að vera þar mitt á meðal, er tveir eða þrír kæmu saman í nafni hans. Kristinn dómur er ekki einvera. Hann er eining. Og þó ber enginn slíka umhyggju fyrir einum týndum sauð sem hinn góði hirðir. Villa þessa eina er þjáning hans og stríð. Þeir, sem honum fylgja, skulu vera ein hjörð, einn líkami, — hver annars limir. Kristur er vínviðurinn. Þeir eru greinarnar. — „Verið í mér. Þá verð ég líka í yður.“ Sé Jesús Kristur einhvers staðar á jörðu, þá er hann þar, sem lærisveinarnir koma saman. Þess vegna titrar hjartað í þessum stóra sal. Unga fólkið, geðþekkt, prútt og frítt, er menntafólk frá öllum Norðurlöndum, flest háskólastúdentar. Á þátttakendaskrá eru taldir 8 frá Færeyjum, um 95 frá Danmörku, 190 frá Finnlandi, 300 frá Svíþjóð, 600 frá Noregi og um 160 frá íslandi, alls um 1360. Þó ber þess að gæta, að miklu fleiri íslendingar sækja fundi og sam- komur en þeir sem skráðir eru. Sagt er, að aldrei hafi verið haldið fjölmennara norrænt mót á íslandi og aldrei fjölmennara stúdenta- mót á Norðurlöndum. 255

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.