Kirkjuritið - 01.12.1975, Síða 24
veittu því mikla hlutdeild í mótinu á
þann hátt.
— Hefur hópur virkra, kristinna
stúdenta vaxið á islandi?
— Því er dálítið erfitt að svara.
Reglubundnir fundir eru ekki hafnir á
þessu skólaári.
Gísli Jónasson leggur hér orð í belg
og segir, að hér sé þess að gæta, þótt
leitt sé, að svo mikið hafi verið að
gera hjá íslenzka starfsfólkinu við alls
konar nauðsynlega umsýslu, að lítill
tími hafi orðið aflögu til þess að sinna
þeim íslendingum, sem komu og voru
framandi á mótinu, bæði ókunnugir
mönnum og boðskap. Aftur á móti
telur hann, að mótið muni hafa vakið
athygli á starfi Kristilegs stúdentafé-
lags, einnig meðal háskólastúdenta,
og hann kveðst vona, að nýjar leiðir til
starfs muni opnast þess vegna.
Síra Jón tekur í sama streng og
segir, að án efa muni félagið miklu
kunnara eftir mótið. Kveðst hann hafa
orðið þess var, að áhugi hafi víða
vaknað á starfi þess. Prestur utan af
landi hefur t. d. sagt honum, að mikið
hafi verið rætt um mótið manna á
meðal í hans prestakalli. Fólk virtist
mjög hrifið og undrandi yfir þeim stóra
skara, sem mótið sótti. Hann telur, að
trúmálaumræðurnar, sem fram fóru í
blöðum á sumrinu, hafi einnig valdið
því, að athygli manna hafi verið vak-
andi fremur en ella. Því hafi sá hái
tónn fagnaðarerindisins, er hljómaði
frá mótinu, náð fleiri eyrum en annars
hefði orðið.
Aðspurðir segja þeir félagar, að
virkir félagsmenn, sem eru við nám,
muni hafa verið fast að fjörutíu að
undan förnu, en séu eldri félagar með
taldir, eru félagsmenn um tvö hundruð.
Á prjónunum
— Hvaða vetrarstarf hafið þið á
prjónunum?
— Vetrardagskrá verður send fé-
lögum næstu daga. Við leggjum fyrst
og fremst áherzlu á starfið í háskólan-
um. Þar munu koma saman tveir eða
þrír biblíuleshópar að jafnaði. Síðan
munum við hafa opið hús fyrir stúd-
enta í Stúdentakjallaranum öðru hvoru.
Við byrjuðum á slíku í fyrra vor. Þá
geta stúdentar fengið sér kaffi, og fé-
lagsmenn verða til viðtals um starf
félagsins, bækur, sem félagið hefur á
boðstólum, o. s. frv. Eins munum við
halda það, sem við köllum stúdenta-
kvöld, — uppbyggilega fundi fyrir
stúdenta, sem eru við nám. Þau verða
haldin sjö sinnum á haustmisseri. Þá
verður, eins og undan farna vetur,
opið hús hjá nokkrum eldri og yngri
félagsmönnum, þrem sinnum nú 1
haust. Þá gerum við ráð fyrir, að við
munum þurfa að hafa eins konar
vinnukvöld vegna útgáfustarfs. Við
höfum hug á að halda áfram að gefa
Kristilegt stúdentablað út í dagblaðs-
formi. Slík vinnukvöld hafa gefizt vel-
Við komum þeim á í fyrra, þegar unnið
var að undirbúningi stúdentamótsins-
Fólk kynnist vel, þegar það fer að
starfa saman að ákveðnu verkefni.
Stúdentamót verður að sjálfsögðu
haldið, eins og venja er á haustin-
Rætt er um að efna til þriggja daga
ráðstefnu í nóvember og fjalla um
stöðu félagsins. Og svo ætlum vi^
262