Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 33
í Svíþjóð, og í Englandi er allt mor-
andi af þeim. Sumir óttast, að mann
fórnir verði hafnar á Skandínavíu á
næstu mánuðum. Djöfladýrkendur
fórna hiklaust fingrum sínum.
Þetta er hræðileg staðreynd, sem
hlýtur að vekja til umhugsunar. Hvern-
ig eru kristnir menn viðbúnir slíku,
slíkri innrás djöfulsins? Hér kemur
hann öskrandi sem Ijón. Það finnst,
en sést ekki, þegar hann læðist um
í Ijósengilsmynd, en þegar hann fer
að öskra, þá sést hann. Þá eru fráfall
°9 afneitun komin á það stig, að hann
Þykist ekki þurfa að hafa hljótt um sig.
Um gott prestseyra
— Síðasti ræðumaður á mótinu var
Henrik Perret frá Finnlandi.
-— Já, hann hefur starfað mikið í
stúdentahreyfingunni í Finnlandi og
hefur nú verið kallaður til að verða
stúdentaprestur í haust. Hann hefur
verið aðstoðarprestur í Helsingfors að
undan förnu. Hann er gæddur sér-
staeðum tónlistargáfum, hefur líklega
Það, sem kallað er ,,absolut“ tóneyra,
sPiiar hvað sem er eftir eyra í öllum
tóntegundum. Eftir nótum getur hann
sPilað verk meistaranna án undirbún-
ings af ótrúlegri nákvæmni, þegar
hann vill það við hafa. Hann hefur
stjórnað finnska sönghópnum, ,,Go-
sPelteamet“, sem hér kom fyrir fjór-
Urn árum. Sá hópur var frábær og í
t^emstu röð, þótt víða væri leitað sam-
anburðar. Raddirnar voru svo afar góð-
ar- Altsöngkonan hafði t. d. hlotið
v'ðurkenningu í söngkeppni og verið
s^ipað í fimmta sæti meðal altradda
Síra Henrik Perrel.
í Finnlandi. Henrik Perret hefur lagt
mikið á sig vegna tónlistarinnar og
starfsins í þágu Guðs ríkis.
Því má raunar bæta hér við, þótt
síra Jón geti þess ekki, að kona Henr-
iks Perret, Ann-Kristin, hefur og kom-
ið mjög við sögu á norrænum stúd-
entamótum sem einsöngvari og sópran
í sönghópnum, sem áður gat. Og söng
hún einnig nokkrum sinnum í Laugar-
dalshöll að þessu sinni, bæði ein og
með öðrum. Allur tónlistarflutningur
þeirra hjóna er miklu vandaðri og fág-
aðri en gerist um söng og tónlist á
slíkum samkomum ungs fólks. Hafa
þau því lagt drjúgan skerf af mörk-
um, til þess að auka tónlistarmennt
meðal stúdenta á Norðurlöndum. Þó er
Henrik Perret ekki það eitt gefið að
geta stjórnað söng og leikið á píanó
og orgel öðrum betur. Hann er fyrst
271