Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 34
og fremst vottur og þjónn Jesú Krists
og þá einlægur og alvörugefinn predik-
ari.
Og síðan matareitrun með meiru
Þar kemur tali manna, að nefnd er
matareitrun sú, er bitnaði á mörgum
mótsgestum. Síra Jón hlær við og
segir:
— Bo Giertz lagði nokkuð skemmti-
lega út af þeim atburði morguninn
eftir nóttina, sem verst var. Hann
komst sjálfur með naumindum niður í
höll til að predika þann morgun. Hon-
um þótti í raun og veru gott, að slíkt
tækifæri skyldi gefast til að líða með
Kristi. Hann sagði: „Þetta minnir okk-
ur á alla þá, sem líða og hafa liðið
um alair. Hugsið ykkur alla þá, sem
fengið hafa matareitrun í fangabúð-
um og engzt sundur og saman, ekki
bara tvo, þrjá tíma eins og við, heldur
e. t. v. dögum saman."
Og fólkið, sem fékk matareitrunina,
þá um nóttina, var í rauninni þakkláti
fyrir þá reynslu, því að þá fyrst fóru
verulega náin kynni að takast, í þján-
ingunni og hjálparstarfinu. Sumir höfðu
við orð, að þeir hefðu þess vegna
kosið, að veikin hefði herjað strax
fyrsta daginn. Þannig varð miklu frem-
ur gaman úr þessu, og gremju varð
alls ekki vart. Þó bitnaði þetta harka-
lega á þeim, sem flytja varð í sjúkra-
hús, en það varð þá líka til þess, að
fólk, sem þar var, komst í snertingu við
mótsgesti og gat rætt við þá. Stúdent-
arnir sungu þar fyrir sjúklinga og báru
trú sinni vitni.
— Sennilega hefur framkoma þessa
stóra hóps af ungu, kristnu fólki haft
meiri áhrif en séð varð í fljótu bragði.
Hún talaði víða sínu máli, og það var
tekið eftir henni, segir skrásetjari. Um
það hafa heyrzt sögur.
Síra Jón játar því og telur, að
predikunarferðir stúdenta út um land-
ið eftir mótið hafi einnig haft talsverð
áhrif með þeim hætti.
Síra Arngrímur segir, að sér hafi
þótt það bezt og merkilegast við mat-
areitrunina, að ekki skyldi verða vart
neinnar beiskju til matargerðarmann-
anna. Hann segist ekki viss um, að
veitingamenn hér á landi hafi í annan
tíma orðið fyrir því, að svo vel vaeri
tekið á slíku atviki. Og aðrir eru hon-
um sammála, en þeir félagar, síra
Jón og Gísli, bera jafnframt mikið lof
á matargerðarmenn og framleiðslu
alla. Segja þeir, að framleiðsla matar
hafi aldrei fyrri gengið svo vel á nor-
rænum stúdentamótum.
Peysur og peningar
Undirbúningsnefnd mótsins og stjórn-
endur hafa hlotið mikið lof erlendra
gesta, sem sýnt hafa þakklæti sitt með
ýmsum hætti og m. a. með peninga-
gjöfum. Síra Jón þakkar Stjórnunar-
félagi íslands það að nokkru, hversu
vel tókst, því að til þess var leitað um
leiðbeiningar, en einkum telur hann
þó að þakka beri þeim mikla fjölda
fórnfúsra stúdenta og annarra áhuga-
manna, sem unnu dag og nótt af stakri
skyldurækni. En þegar spurt er, hvort
nöfn skuli nefnd, vandast málið. Þau
yrðu mörg, sem nefna þyrfti. Hins
vegar hyggur hann, að allir, sem nserri