Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 38
heyrðu, að þeir voru að koma af stúd-
entamótinu í Reykjavík.
— Nú hefur það komið fram í
þessu spjalli okkar, segir skrásetjari,
og eins hef ég séð þess getið í ein-
hverju dagblaði ekki alls fyrir löngu,
að all mikil eftirspurn sé um Bibliur
hér á landi. Teljið þið, að það sé vott-
ur um einhvers konar vakningu? Eru
einhver vormerki í íslenzku kristnilífi?
— Ég held, að það komi fram á
margan hátt, anzar sira Jón, að eitt-
hvað er að gerast á okkar kæra landi.
Gestirnir, sem hingað komu í sumar,
staðfestu það. Þeir þóttust einnig
finna þetta. Og ég er sannfærður um,
að fagnaðarerindið mun enn sýna kraft
sinn á íslandi á næstu árum.
Síra Arngrímur leggur orð í belg,
þegar hér er komið, og talar um nauð-
syn þess, að ungt fólk, sem öðlast
trú á Jesúm Krist, komist í samband
við hina hefðbundnu kirkju. Hann tel-
ur þar um að ræða eitt frumskilyrði
kristniIífs í landinu, því að þar séu þær
vígstöðvar, sem miklu máli skipta,
einkum þó í þéttbýli.
í framhaldi af þeim orðum kemur
svo spurningin um framtíðardrauma.
Verður slíkt stúdentamót haldið á is-
landi aftur í náinni framtíð?
— Okkur þykir ekkert mæla gegn
því, anzar síra Jón.
— Og hvenær væri slíkt hugsan-
legt?
— Spurningin er, hvort við treyst-
um okkur til að halda hér mót fimmta
hvert ár. Ef til vill væri eðlilegra, að
mót yrðu haldin nokkru sjaldnar hér
en á hinum Norðurlöndunum. Byrðarn-
ar, sem axla verður, þegar ráðizt er í
slík stórræði hér á landi, eru óneitan-
lega þungar, ekki aðeins fyrir stúd-
entafélagið, heldur ýmsa aðra aðila.
Þannig tóku t. d. hundrað heimili í
Reykjavík við dvalargestum vegna
mótsins í sumar. Þótt slíku sé vel
tekið, er ekki auðvelt að fara fram á
aðstoð af því tagi hvað eftir annað.
Gísli segist þó sannfærður um, að
norrænt stúdentamót verði haldið hér
á landi eftir fimm ár, og síra Jón segist
hafa haft gaman af að rekast á unga
menntaskólanema, sem hefðu haft við
orð, að þeirra biði nú að hafa for-
göngu um næsta mót að fimm árum
liðnum. Hann segir, að nú þegar séu
uppi vangaveltur um, hvernig bezt yrði
staðið að næsta móti, — uppástunga
hafi jafnvel komið fram um, að bezt
mundi að halda mót sem víðast um
landið, hafa smærri mót hér og þar, en
sameina svo allt í Reykjavík að lokum-
Athyglisverð uppástunga, sem kynni,
ef framkvæmd yrði, að stuðla að víð-
feðmari áhrifum og auðvelda og ein-
falda sitthvað, sem ella kynni að vaxa
mönnum yfir höfuð.
Ljóst er, að samskipti íslenzkra
stúdenta við norræna samherja skipta
hér miklu máli á næstu misserum. En
þótt allt sé nú í óvissu um næstu
stórræði, verður Kristilegt stúdenta-
félag fertugt á næsta ári. Þess skal
minnast með einhverjum hætti. Að
öðru leyti verður öll framtíð óskrifað
blað um sinn — og þó í hendi Guðs.
G. Ól. Ól. skráði.
276