Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 48
og samviskusemi, sem einkenndi störf
hans fyrr og síðar.
Á fundum félagsins var hann jafnan
hinn létti og glaði þátttakandi, hvetjandi
til umræðu og athafna. Hann átti sinn
ríka þátt í því, að í félagi okkar hefir
aldrei orðið fundarfall þau 36 ár, sem
það hefir starfað. Sem formaður þess
árin 1956—1969 mátti segja, að hann
bæri það uppi á einn og annan hátt.
Aldrei var sæti hans autt á fundarstað
nema sjúkravist hindraði. Og ávallt á
fundum lék um okkur hlýja og bjarta
brosið, sem hann var svo ríkur af í
vinahópi. í félagi okkar varð því skarð
fyrir skildi þegar hann fyrir 6 árum lét
af formennsku og fundarsókn vegna
vaxandi sjóndepru. Og nú, þegar hann
er allur, finnum við bezt hvað við átt-
um, meðan hans naut við.
Með síra Jóni Guðnasyni er genginn
óvenjulega mikilhæfur maður og eftir-
minnilegur öllum þeim, sem með hon-
um áttu störf og stundir. Sem prestur
og kennari bar hann hátt merki starfs
síns og stéttar. Og sem ættfræðingur
og fræðimaður skráði hann nafn sitt
á spjöld íslenzkrar sögu svo að geym-
ast mun um ókomin ár og aldir.
8. des. 1975
Jón Skagan.
286