Kirkjuritið - 01.12.1975, Síða 53

Kirkjuritið - 01.12.1975, Síða 53
roða.“ Hins vegar er ekki blöðum um Það að fletta, að honum hlýtur að !eiðast kristinn dómur þeirra manna, er kenna sig við nafn hans, en þurfa sjaldan eða aldrei að fara 1 kirkju, enn síður að ganga að borði hans og alls ekki að sinna smæl- ingjum hans, fyrr en þeir hafa sjálfir notið allra gæða til hlítar. Einna skað- legust og óskemmtilegust eru þó ó- heilindin og hálfvelgjan, þegar launað- ir starfsmenn kirkjunnar þykjast ekki Þurfa að sinna kirkjugöngum. HofmóSugir vindar Norðmenn tala um afkristnun, Færey- ingar efalaust einnig. Sjái þeir, frænd- Ur vorir, bliku hennar. þá eru vindar hennar þegar orðnir hofmóðugir á is- •andi. Margir kristnir menn óttast kommúnista og sósíalista, telja þar skæðustu óvini kristninnar. Og það er satt, að víða hafa róttækir menn fjand- skapazt við kristna menn, annað hvort af hreinni illgirni ellegar af pólitískri hugsjón. En það er hjátrú, að þeir séu éðrum óvinum hættulegri. Já, meira sö segja er spurning, hvort kristnin ^uni ekki, að fám árum liðnum, standa með mestum blóma í þeim sósíalista- °g kommúnistaríkjum, þar sem hún er nu einna óvinsælust af stjórnvöldum. Sitthvað gæti bent til þess, að svo muni verða. Og hin íslenzka afkristun er ekki sósíalistum eða kommúnistum kenna. Rök sín og aðferðir hafa Þei sott í smiðju til annarra, sem Voru á undan þeim. Það gerði gæfumuninn milli vor og r®nda vorra í Noregi og í Færeyj- um, svo að þeir séu enn teknir til dæmis, að öflugar trúarvakningar urðu hjá þeim, um þær mundir, er vér fengum dreggjarnar af Brandesi og aldamótaguðfræðinni frá Dönum og Þjóðverjum og síðan spíritisma og fleira góðgæti í ábæti. Sé kirkjusókn dræm á islandi og annar bragur kristni- lífs eftir því, fari predikanir presta fyrir ofan garð og neðan hjá áheyrendum, þá þarf ekki að leita orsakanna ann- ars staðar fremur. Menn, sem sviptir hafa verið trú sinni á, að Biblían sé merkilegri bók en aðrar gamlar bækur, og lært það jafníramt, að Jesús Kristur hafi verið maður eins og hver annar, en enginn lausnari, að grundvöllur trú- arinnar á líf að loknu þessu sé vitnis- burður framliðinna manna, en ekki upprisa Krists, þurfa ekki að ganga í kirkju. Þetta er svo augljóst, að hvert mannsbarn, sem nokkuð þekkir til for- tíðar og nútíðar á íslandi, ætti að geta séð það. Furðu fáir virðast þó átta sig á þessu. Hins vegar gengur marg- ur landinn með kynlegustu grillur um frjálslyndi og víðsýni íslenzks anda og jafnvel sérkennilegan, íslenzkan krist- inn dóm. Dæmin eru mörg. Skúli á Ljótunnarstöðum les Nýja testamentið í hænsnahúsi á barnsaldri og heldur, að hann hafi af barnslegum skilningi uppgötvað, að engin guðfræði sé í guðspjöllunum, heldur muni hún vera uppfinning Páls postula og annarra slíkra. Verst er, að vísast munu ein- hverjir trúa honum eins og nýju neti. En hvernig stendur á því, að þessi barnslega uppgötvun kemur svo mæta vel heim við tízkuguðfræði bernsku hans? Jakobína Sigurðardóttir gerði 291
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.