Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 54
aSför að bæn Drottins, „Faðir vor“,
og kvöldmáltfðinni fyrir fám árum.
Hvaðan kom henni sá fjandskapur og
hvaðan voru rökin? Guðmundur Daní-
elsson dró upp úr pússi sínu ritgerð
um Helgakver, sennilega gamla, og
birti í Suðurlandi í fyrra. Trúlega hefur
einhverjum þótt hún nýtileg á kenn-
araskólaárum hans. Hann virðist trúa
því, að þetta hafi sprottið af frjálsri
hugsun hans sjálfs, en það er allt fullt
af aldamótakreddum, afsprengi tízku-
fyrirbæris í guðfræði og húmanískum
fræðum, — þess vegna úrelt fyrir
löngu.
Slík dæmi af fólki, sem allmikið
lætur að sér kveða í fjölmiðlum og á
ritvelli, benda ekki ótvírætt til þess, að
kristinn dómur eða þekking á kristnum
fræðum sé á marga fiska með is-
lendingum um þessar mundir.
G. Ól. Ól.
Leiðrétting um guðfræðiráðstefnu
i tíðindadálkum 3. heftis Kirkjurits var lítillega sagt frá guðfræði-
ráðstefnu, sem haldin var í Lýðháskólanum í Skálholti s. I. sum-
ar. Voru þar taldir upp þeir, er flutt hefðu fyrirlestra. Af vangá
hefur þó með öllu gleymzt að geta eins fyrirlesarans, dr. Björns
Björnssonar, prófessors. Er hann sjálfur, aðstandendur nám-
skeiðisins og lesendur allir beðnir mikillar velvirðingar á þessu.
Dr. Björn fjallaði um holdtekju orðsins og siðfræði í erindi sínu,
og gerði hann þar grein fyrir ýmsum þeim kenningum, sem uppi
eru meðal siðfræðinga samtímans. Þá tók hann og mjög virkan
þátt í ráðstefnunni að öðru leyti sem og aðrir fyrirlesarar.
292