Kirkjuritið - 01.12.1975, Page 56
Skiptinemar
Um mánaðarmótin júlí/ág. s. I. hófst
nýtt skiptinemaár, svo sem venja er.
Við kvöddum þá erlendu gestina okk-
ar, er hér höfðu dvalið í eitt ár. Öll
höfðu þau sótt tungumálanámskeið,
öll verið í skólum kirkjunnar í Skál-
holti og að Löngumýri, öll unnið í fiski
og verið á bóndabæ og nokkur kom-
ust einnig að við félagsleg hjálpar-
störf. Var árið ágætt og að mestu án
árekstra. Þrjár ráðstefnur voru haldn-
ar, var þeirrar fyrstu getið í skýrslu
æskulýðsfulltrúa fyrir haustráðstefnu
1974. Önnur ráðstefna var með um-
sækjendum um þátttöku í nemenda-
skiptum fyrir árið 1975 til 1976. Loka-
ráðstefnan var s. I. vor í Neskirkju í
Reykjavík. Var sú ráðstefna í þrem
þáttum. í fyrsta lagi var uppgjör er-
lendu skiptinemanna, í öðru lagi var
lokaundirbúningur fyrir íslenzku skipti-
nemana, er fara skyldu utan og loks
voru erindi og umræður um „ungling-
inn í dag.“ Nokkrir foreldrar tóku þátt
í þessari ráðstefnu, en hún þótti vel
takazt. Létu erlendu skiptinemarnir vel
af dvölinni og einn hafði á orði, að
hann þekkti nú betur islendinga en
eigin þjóð. Lét sá sami vel af starfs-
áætlun okkar og rekstri öllum, en kvað
óljóst, hvað við eiginlega vildum með
starfsáætluninni. Nú má það öllum Ijóst
vera, að þótt við hér heima vildum
enn bæta starfsáætlun okkar þá virðist
svo af bréfum frá íslenzku skiptinem-
unum okkar erlendis, að áætlunin
sé okkur fremur til hróss en ósóma.
Hitt var þörf áminning, að markmið
okkar kemur e. t. v. ekki nægilega
skýrt fram. Kristur er markmið okkar
og grundvöllur. Á það þarf að leggja
meiri áherzlu á ráðstefnum okkar, en
hvað þennan grunn og þetta markmið
snertir, þá beinast augu okkar fyrst
og fremst til Skálholtsskóla. Fyrir því
virðist að leggja beri áherslu á, að allir
okkar erlendu skiptinemar stundi nám
um tíma í skólum kirkjunnar. Þannig
munu allir erlendu skiptinemarnir, er
nú dvelja hér, vera við nám um tíma
í Skálholti á þessum vetri. Hitt vil ég
undirstrika, að stöðugt ber að endur-
skoða starfsáætlun okkar og byggja
upp frá þeim grunni, sem hún hefur
verið, er og mun verða byggð á.
Jafnframt því, sem við kvöddum
okkar erlendu gesti um mánaðarmótin
júlí/ágúst, kvöddum við einnig nýja
íslenzka skiptinema. Fór einn til Sví-
þjóðar, einn til Finnlands, þrír fóru
til Sviss, einn til Austurríkis, einn til
Nýja-Sjálands og fimm fóru til Banda-
rikjanna. Við höfðum, svo sem áður
segir, haft með þeim tvær ráðstefnur,
en auk þess oftlega hitt þau og staðið
í bréfasambandi við þau. Láta þeir nú
allir vel af undirbúningi og dvöl sinni-
Er þeim skrifað reglulega einu sinni í
mánuði, og þeir svara svo til reglu-
lega. Er hér um að ræða bót frá því
sem áður var.
Við heilsuðum einnig gömlu skipti-
nemunum íslenzku í júlí/ágúst og
höfum haft með þeim eitt mót. Létu
þau öll vel af dvöl sinni. Þá heilsuðum
við nýjum erlendum skiptinemum. Eru
tveir frá Bandaríkjunum, einn frá Sví-
þjóð, einn frá Þýzkalandi, einn frá
Nýja-Sjálandi. Öllum þeim voru útveg-
uð góð heimili á réttum tíma og yf>r'
294