Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 60
á lager nokkur ár í viðbót. Gerð var
kostnaðaráætlun um prentun bókar-
innar „Vem ska jag tro pá“ en sú bók
er sænsk og að flestra mati bezta
fermingarkverið, sem nú er völ á á
Norðurlöndum. Eins og málin standa
nú, verður stefnt að því að láta þýða
þessa bók og staðfæra og síðan prenta
á íslenzku, en áður en allt þetta fer
í gang, þarf að tryggja að þessi bók
verði notuð til reynslu veturinn ‘76—
‘77 af u. þ. b. 1000 fermingarbörnum
hér á landi, til þess að unnt sé að fjár-
magna fyrirtækið að einhverju leyti og
lengja tímann, sem núverandi birgðir
af Kristinni trúfræði ná yfir.
Kristið kvikmyndasafn
Um leið og gleðjast má yfir sporum
í rétta átt hvað snertir barnastarfið og
árangur þess, hlýtur nokkurn skugga
að bera yfir efnisöflun og útgáfustarf-
semi fyrir unglinga. Þar hefur aðeins
eitt raunverulegt átak verið gert. Það
er upphaf kvikmyndasafnsins. Því hef-
ur áður verið lýst, hvernig að undir-
búningi var staðið og verður það ekki
ítrekað hér, en nú eru í vörzlu og til
dreifingar hjá Fræðslumyndasafni rík-
isins fjórar kvikmyndir Æskulýðsstarfs-
ins ásamt með ítarlegum tillögum um
notkun þriggja þeirra. Fylgja tillögur
þessar kvikmyndunum. Prestum hafa
einnig verið kynntar þessar myndir og
tillögur um notkun þeirra. Vonandi
verður framhald á þessum þætti Æsku-
lýðsstarfsins, en sennilega verða
næstu myndir, er í safnið koma, að
vera með íslenskum texta. Sérstök
nefnd eða starfshópur er nauðsyn-
legur til að sjá um þennan þátt starfs-
ins með æskulýðsfulltrúa.
Sumarbúðir
Rekstur sumarbúðanna gekk [ heild
nokkuð vel. Endanleg uppgjör þeirra
liggja þó ekki ennþá fyrir. Að
líkindum hefur aðsókn verið best á
Vestmannsvatni og rekstur þar komið
einna hagstæðast út. Aðsókn að Skál-
holti varð fremur dræm í byrjun og
jókst ekki fyrr en dvalargjald var lækk-
að. Varð það til þess að flestir dvalar-
flokkar fylltust. Erfitt er að geta sér
til um ástæður minnkandi aðsóknar
í sumarbúðir. Hér sunnanlands er þó
úr nokkuð mörgum sumarbúðum að
velja, einnig virðast orlofsheimili og
jafnvel sólarlandaferðir koma að
nokkru í stað sumarbúðadvalar. Þarf
því greinilega að taka sumarbúðamál
fastari tökum og e. t. v. að fara aðrar
leiðir í notkun sumarbúðahúsnæðis.
Fermingabarnamót
Á undanförnum árum hefur verið ýmis
konar þjónusta við fermingarbörn. Á
vorin hafa prestar í Árnessprófasts-
dæmi haft mót fyrir fermingarbörn,
sem fermst hafa um vorið. Hefur verið
um 2—3 hópa að ræða og hver hóput
staldrað við í Skálholti í einn sólar-
hring. Prestar úr Rangárþingi hafa
fengið inni í Skálholti með sín ferm-
ingarbörn haustið áður en þau ferm-
ast og haft 3 daga mót, sem e. k-
upphaf fermingarfræðslunnar.
í haust var svo hópur fermingai'"
barna næsta vors úr Garðahreppi- Sa
háttur var hafður á, að hver bekkur
fékk eins dags frí í skólanum og dvaldi
298