Kirkjuritið - 01.12.1975, Qupperneq 64
og erlendis
Þrengingar kirkjunnar í
Tékkóslóvakíu
Síra Michael Bourdeaux ritar í Church
Times um stöðu kristninnar í Tékkó-
slóvakíu og segir: i Tékkóslóvakíu eru
kirkjur opnar, en með öllum ráðum er
reynt að bregða fæti fyrir þá, sem iðka
kristna trú.
Ferðamaður, sem kemur til Tékkó-
slóvakíu og er á gangi í borg eða bæ
veitir því athygli, að flestar höfuðkirkj-
ur eru opnar. Þetta eru kirkjur ýmissa
kirkjudeilda. Fólk fer þangað til til-
beiðslu. Gangir þú inn í kirkju heilags
Bartholomeusar í Pilsen, þá finnur þú
þar í forkirkjunni lista yfir allar kirkjur
borgarinnar. Þar hangir líka stórt kort
af borginni, sem sýnir hvar kirkjurnar
eru og hvenær þar eru guðsþjónustur.
Þegar þú gengur innar í kirkjuna verð-
ur fyrir þér bókaborð og þar er kristið
vikublað til sölu (Katolicke Noviny).
Sértu kominn í kirkjuna til að hlýða
þar messu, færðu í hendur sálmabók
frá 1966 og fjölritaða messuskrá (yfir
fasta liði messunnar).
í annarri kirkju í Pilsen, Maríu kirkj-
unni, er auglýst námskeið í kristnum
fræðum fyrir börn, og þú ályktar:
„Þetta er gleðileg andstæða við
ástandið í Sovétríkjunum“, því að í
Sovétríkjunum er enginn listi sjáan-
legur í kirkju um aðrar opnar kirkjur,
engin blöð né bæklingar til leiðbein-
ingar kristnum manni eða ferðamanni.
Kristindómsfræðsla er bönnuð þar með
lögum og séu þau lög brotin er refs-
að fyrir með svartholi eða þrælkunar-
búðum.
HiS raunverulega líf kirkjunnar
Þegar svo betur er að gáð og dýpra
skyggnst í líf kirkjunnar í Tékkóslóv-
akíu kemur brátt annað í Ijós, en áð-
ur var álitið.
Kommúnistaflokkurinn í Tékkóslóv-
akíu hefir kunngjört það opinberlega,
að það sé takmark flokksins að út-
rýma trúarbrögðum úr þjóðfélaginu.
Reglugerðir flokksins, sem bera yfir-
skriftina, Staða hugmyndafræðilegrar
menntunar og afstaða til trúar, kveður
á um þetta takmark. í reglugerðum
þessum er tekið fram, að trúarbrögð
séu óvísindaleg, and-sósíalísk, ofmet-
in hugmyndafræði og höfuðóvinur
Marx-Leninstefnunnar.
Vilji foreldrar láta börn sín sækja
fræðslu í kristinni trú, verða þeir að
sækja um það um hendur skólastjórn-
ar barnaskólanna, en ekki til presta-
Síðan er listi með nöfnum barnanna
fengin yfirvöldum í hendur og þá hefj-
ast vandræði bæði barna og foreldra-
Sem dæmi skal nefnt, að 11 ára
stúlka sótti um fræðslu í kristinni trú.
302