Ljós og skuggar - 01.01.1903, Síða 3

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Síða 3
Hátt verð. Húsið hans Steins smiðs stóð með fram veginum, er lá að brautastöðvunum. Kvöldsólin sendi kveðju geisla sína yfirlandið; þeir gyltu turninn á þorpskirkjunni, og þeir vermdu einnig iitla krypplinginn, er sat úti fyrir húsinu. „Komdu nú inn, Jóhann,“ sagði glaðleg bams- rödd og Karen lii la Steinsdóttir kom út í dyrnar á húsinu. „Eg er nú búin að búa alt til reiðu, áður en mamma kemur heim, og það er ekki vert að þú sjert lengur úti.“ „Það er svo fagurt hjerna úti, Karen,“ sagði litli krypplingurinn og horfði bænar augum á systur sína, er var nokkrum árum eldri en hann. „Það er svo gaman að sjá oimiestina þarna langt í burtu, en það er dimmt og leiðinlegt inni.“ „En þú verður nú samt að koma inn, Jóhann; mamma var búin að biðja mig að gæta þess, að þú værir ekki úti i kvöldkælunni. Komdu nú, jeg skal hjálpa þjer." Jóhann stundi þungann, en sagði ekkert. Systir hans reisti hann á fætur, og hann studdist við hönd hennar og hækju sína inn í húsið. Það var hálf dimmt inni í stofunni, en allt

x

Ljós og skuggar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.