Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 6

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Page 6
6 „Já, mjer þætti mjög vænt um að sjá ykkur heima hjá mjer, og það getur verið dálítil tilbreyt- ing fyrir litla, sjúka vininn minn.“ Húsdyrunum var lokið upp og móðir barnanna kom inn. Hún var há og grannvaxin, fremur ung- leg í útliti, en þreytuleg á svip. „Þarna kemur vist móðir ykkar,“ sagði prests- konan, „það var gott að jeg fjekk einnig að tala við yður. Jeg er kona prestsins ykkar nýkomna, og jeg kom hingað til að bjóða börnunum yðar að taka þátt í sunnudagaskóla, sem við hjónin ætlum að fara að halda.“ „Það var fallega hugsað, vill frúin ekki fá sjer sæti?“ Hildur þerraði af stól með svuntunni sinni og bað frúna að „gjöra svo vel.“ „En hvað allt er hreint og snoturt hjá yður,“ sagði hún um leið og hún settist á stólinn. „Segið þjer mjer nú eitthvað um hagi yðar. Manninn minn og mig langar mjög til aö kynnast nýja sókn- arfólkinu okkar, og vera því hjálpleg eptir því, sem við getum. Eruð þjer ekkja?" „Jeg get svarað bæði játandi og neitandi," svar- aði Hildur, „hann er í fangelsi hann” Steinn" sagði hún í lágum hljóðum. Frú Willmann tók í hönd hennar og horfði á hana mað hluttekningu „Ó, þá hafið þjer orðið að þola mikið. Geta börnir. ekki farið eitthvað út fyrir á meðan við tölum saman? Sigríður, farðu með þeim niður að vagninum og sýndu þeim hestinn, já, segðu honum Níels að aka ykkur

x

Ljós og skuggar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.