Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 29

Ljós og skuggar - 01.01.1903, Side 29
29 fyrst mjer er boðið. Það væri skárri ókurteysin, að fara ekki.“ „Þetta getur nú verið Helga mín, en það er nú dánardagurinn hans föður þíns heitins á iaugar- daginn, og jeg kynni ver við að vita þig í glaumi þann dag.“ „Það er nú orðið svo langt síðan.“ „Ekki finnst mjer það nú, vel man jeg eptir því, sem þá gjörðist, og jeg vil ekki gleyma því. Þú veizt Helga mín þar að auki að jeg er ekki vel frísk, læknirinn kom hjerna í dag og sagði mjer að jeg yrði helzt að liggja í rúm- inu, en kringumstæðurnar leyfa mjer það ekki.“ „Ertu veik? Þessir læknar skipa manni nú æfinlega í rúmið, en blessuð fáðu þjer nú almenni- lega vinnukonu um tíma, naumast kostar það nein ósköp.“ „Við skulum ekki tala meira um það núna góða mín, jeg reyni að vera á fótum á meðan jeg get, en hvað þennan dansleik snertir, þá veiztu að jeg vil síður að þú farir í þetta skipti, jeg banna þjer það samt ekki, ef þjer finnst það viðeigandi." Helga sagði ekkert. Hún gekk út að glugg- anum, og horfði út á götuna. Þarna gengu þær ína og Anna, þær voru á leiðinni til S. með kjóla- efnin sín, en hún sat hjer og gat líklega ekki farið neitt. Munur var nú á! fær litu hlæjandi upp í gluggann til hennar um leið og þær gengu hjá. Hvað átti Helga til bragðs að taka?

x

Ljós og skuggar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og skuggar
https://timarit.is/publication/478

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.