Ljós og skuggar - 01.01.1904, Page 19
19
mál hverrar þjóðar. Afengisbölið er hið þyngsta
böl, er mannkynið hefur að bera. Spyrjið þið
konur drykkjumannanna, mæður þeirra, börnin
þeirra, alla aðstandendur þeirra, hvort þeir þekki
nokkurt annað meira böl! Komið þið með mjer
inn á heimili drykkjumannanna, og þið þurfið
ekki framar vitna við, „þegjandi votturinn lýgur
sízt.“ Og hver vill svo, sem hefur einhvern
snefil af mannúð og bróðnrkærleika til að bera,
skella skolleyrum við kalli voru: Komið, takið
þátt í baráttunni, standið eigi hjá með hendur í
vösum. Málefni vort er alvarlegt, og skyldur
vorar eru einlægni, kapp, kærleikur, alvara.
► Vjer viljum leitast við að benda á hættuna,
forða frá henni, bægja henni algjörlega burtu.
Er enginn, gestur hjer inni, sem vill leggja
hönd á þetta háleita hlutverk með oss. Pað
borgar sig að vinna landinu sínu, þjóð og einstak-
lingi æfinlegt og varanlegt gagn. “ — —
Því næst tók kona til máls:
„Jeg þekki ofdrykkjuna, og jeg flýði undir
vernd Keglunnar, og bjóst við hlífð fyrir mig og
drenginn minn, og fjekk hana. Jeg vil beina
orðum mínum til kvenmanna, einkum til mæðr-
anna, sem eiga syni: viljið þið ekki að synir
ykkar verði reglumenn? Jeg þekki margar kon-
* ur, sem ekki vilja hætta að hafa vín um hönd
í húsum sínum, sem ekki þykir það „fínt“ að
vera Good-Templar, sem eru ekki hræddar við
áhrif vínnautnar í „hófi.“ En jeg þekki einnig,