Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 8

Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 8
6 sýrpá unarhúsin, er skyldi vera tákn þess aS lögreglan héldi uppi friöi og griö- um. Næsta morgun kom séra Jón á Ingjaldshóli aö Rifi. Ekki kom hann í verzlunarerindum, heldur til aö leita frétta hjá Englendingunum. Séra Jón var sænskur aö ætt, haföi um nokkur ár stundaö nám erlendis og oft dvaliö á Englandi. P>ar haföi hann liitt lúskup frá íslandi og þann- ig náð íslenzkri prestsstööu. Séra Jón var mentaður maöur, ekki a'ö eins í gömlu málunum. Hann lagöi sérstaka stund á landafræöi og fylgdi meö áhuga öllu því er gjöröist um uppgötvun nýrra landa. En þarna var hann fjarri öllum þeim hjálpar- lindum er til liks lærdóms þarf, — haföi því mikiö af þekking sinni frá samræöum viö misjafnlega áreiðan- lega menn. Landafræðisþekking hans var því orðin samsull af bóklærdómi og hégiljusögum. Hann skoðaði veru sína á íslandi sem nokkurs kon- ar útlegð, og áleit íslendinga skræl- ingjalýð. En samt var hann lilýlegur í allri viðbúð við sóknarbörn sín, og rækti embætti sitt samvizkusamlega. Sóknarmönnum hans var því hlýtt í geði til “enska prestsins”; en svo kölluðu þeir hann, og þeir fyrirgáfu honum þó hann talaði illa mál þeirra og væri undarlegur í háttum að ýmsu leyti. Þegar séra Jón kom ofan að Rifi þenna morgun, er áður er frá sagt, þá lá skipið á þurru landi. Hann gekk þegar til fundar við vin sinn, R. Bur- lington skipstjóra, sem hann þekti frá fyrri árum. Skipstjóri var þá að tala við ókunnan mann. Maður sá, er skipstjóri ræddi við, var meðal- maður á hæð, vel vaxinn, langleitur, með bogið nef og ljós aúgu. Klæðn- aður hans sýndi, að hann var ekki einn af skipverjum. Hann var dökk- ur á hörund og eins og eldur brynni úr augum lians. Auðsjáanlega var hann af suðrænu kyni. Hárið var nærri hvítt oröið og þó leit hann ekki út fyrir að vera eldri en þrítugur. Skipstjóri tðk kveðju prestsins mjög virðulega og sagði liann kæmi eins og hann hefði verið kallaður. Kvaðst hafa verið aö tala um hann við hinn háttvirta gest sinn, sem héti Sir Christopher Dave. “Það er portúgiskur höföingi,” hvíslaði skip- stjóri að presti, “og guð rná vita ltvers vegna lionum hefir dottið í hug að ferðast til íslands. Eg hefi veitt honum far fyrir góða borgun og góð loforð, og lofað honum að greiða fyrir erindi hans eftir mætti. Og það cr nú bón min til yðar, að þér takið hann á heimili yðar, fyrir sanngjarna ltorgun, þcnnan tíma, er eg dvel hér. Yðttr skal ekki iöra þess. Hann er allra heiðarlegasti maður og hefir ferðast um öll lönd og höf. Hann getur frætt yður um þá liluti meira en eg og mínir líkar.” Séra Jón varð hugfanginn af gleði yfir þvi að fá svona óvænt svo fróð- an gest. En áður en hann yrti á hann spuröi hann skipstjóra, hvort gesturinn kynni ensku. “Já, hann getur gjört sig skiljan- legan á ensktt,” sagöi skipstjóri. “En hann talar latínu eins og hann væri prestur.” Þegar séra Jón liafði fengið þessa ánægjulegu frétt, þá sneri hann sér að ókunna manninum og talaði til hans á ágætri latínu. Ilann kvað sér það óvænta gleði, að eiga von á heímsókn jafn-göfugs ntanns; og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.