Syrpa - 01.09.1913, Qupperneq 61

Syrpa - 01.09.1913, Qupperneq 61
P'LÖSKUPÚKINN Lápaka, “og hrædclur er eg um, a& flaska þessi verði þér einhvern tíma hvimleiS. Já, þú mátt vera viss um, aö þú kemst einhvern tíma í klípu hennar vegna, og þess vegna er bezt fyrir þig aS nota þér líka eiginleika hennar þér í hag sem bezt má veröa. Hugsaöu þig nú um og ráö þú þaö viö þig, hvers.þú vilt krefjast; síöan skalt þú skipa flöskupúkanum aö upp- fylla ósk þína; og ef alt veröur að framkvæmdum, sem þú æskir, muu eg kaupa af þér flöskuna, því aö mig langar til þess aö eignast skip og relca síðan verzlun á Suöurliafseyj- unurn.” “Ekki langar mig svo mjög til þess,” sagöi Kífi, “en eg vildi eiga fallegt hús og garð umhverfis á Kónaströndinni, þar sem eg er fædd- ur. Þar skal svo til liaga, aö sólin skíni jafnan inn um dyrnar úr hverri átt; blóm skulu vera í garðinum, gler í gluggunum, málverk á veggjunum, og dýrindis klæði og allskyns glingur á boröunum; og skal það vera að öllu eins og húsiö, sem eg sá í gær í San Francisco, ncrna því, að það skal vera einu lofti hærra og meö svölum alt í kring eins og konungshöllin. Þar ætla eg svo aö búa áhyggjulaus fyrir lífi mínu, með vinum mínum og ætt- ingjum.” “Já, við skulum hafa flöskuna meö okkur til Hafeyjar,” sagði Lápaka; “og ef það kemur alt frani, sem þú hefir óskað þér, þá skal eg kaupa af þér flöskuna, eins og eg lofaði þér áðan.” Þeir urðu nú ásáttir um þetta og leiö ekki á löngu þar til skipið var komið til Hafeyjar. Kífi og Lópaka fóru óðara í land, og þegar þeir komu upp i fjöruna, mættu þeir einum vina sy sinna ög vék hann sér þegar að K'uá og tjáöi honum samhrygð sína. “Eg veit ekki hvaða ástæðu þú get- ur haft til þess aö samhryggjast mér,” sagði Kífi. “Hefirðu ekki heyrt það, aö hann föðurbróðir þinn er dáinn?” sagði maðurinn, “og að hann sonur hans cr druknaður, svo einstaklega efnilegur drengur.” Við þess fregn varð Kífi yfirkont- inn af harmi og gleymdi alveg flösk- unni; en Lópaka hugsaði málið. Og svo þegar Kífi var ofurlítið farinn að nú sér aftur, tók Lóapaka hann tali og spurði hann, hvort föðurbróð- ir hans hefði ekki átt land þar á eynni. Kífi kvaö já við því, og kvaö það vera í fjöllunum nálægt Hókena. “Verður þá landið ekki þín eign?” spurði Lópaka. “Jú,” sagði Kifi, og fór svo aftur að barma sér yfir ástvinamissinum. “Nú máttu ekki sýta og kvarta,” sagði Lópaka. “Mig er nú farið að gruna margt. Hvað segir þú um það, ef þetta væri nú alt af völdum flöskupúkans? Þarna getur þú þó látið byggja húsið þitt!” “Ef það væri af hans völdum,” sagöi Kífi, “þá segi eg fyrir mitt leyti að mér þykir það illa fenginn auður, sem fæst með því að bana ættingjum sínum. — En eg er einmitt mjög hræddur um, að það sé eins og þú gizkar á, því að landslagið var alveg eins þar sem eg þóttist sjá húsið í huga mínum.” “Að vísu er nú ekki búið að byggja húsið enn þá,” sagði Lópaka. “Únei, og það er ekkert hætt við því, aö það verði gert,” sagði Kífi, "því þó að föðurbróðir minn ræktaöi dálitið af kaffi, avarót*ý og bariaua- *) Ava er jurt, sem víða vex !i SuS- urhafseyjum. Svertingjarnir húa til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.