Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 54

Syrpa - 01.09.1913, Blaðsíða 54
PÁLL LITLI. Eftir VICTOR HUGO. Hann niisti móöur sína um leiö og hann kom í heiminn. Og faðir hans var á bezta aldri og gifti sig aftur. Páll var þá ársgamall, og þaö er fullsnemt að koma til ókunn- ugra. En þá var þar gamall maöur, sem tók hann til sín, — afi hans ; hann gekk drengnum í móöur stað. Barniö verður aö finna einhvern þegar þaö ré-tir út litlu hendurnar. Og þetta barn var veikburða. En fóstran var hraust ; það var fráeyg geit, sem klifraði þar í fjallshlíðinni. Stóri garðurinn fyrir framan húsið lians afa, var heimili litla drengsins. Þar voru grænir grasfletir, skógar- runnar og heilnæmt andrúmsloft. Þar fór vel um barnið á vorin og sumrin. Og þar fann það vini, nefnilega blómin. Þau eru ekki öfundsjúk. í garðinum uxu blómur og ferskj- ur ; þar voru líka viltir rósarunnar, — en það var verið að höggva þá burtu. Milli álmtrjánna glitraði í gáróttan vatnsflöt og ástarsöngvar heyrðust úr fuglalireiðrunum. Al- staöar heyrðist kvak og hvísl. En allar raddirnar voru mjúkar og mildar. Niöri á jörðinni er á hverju vori verið að stama á ný, á ljós- söng þeim, sem ómaði í aldingarö- inum Eden forðum. Þarna var drengurinn elskaður, og það varð að vana fyrir honum. Þarna gekk hann líka fyrstu sporin. Ef steinmoli varð fyrir honum á gangtröðinni, þá datl hann, og hann datt líka ef hola var á vegi hans, en hann var jafn glað- ur fyrir því. Því afi var alt af á hælunum á honum, tók hann upp og setti hann á réttan kjöl. Og drengurinn hló. Enginn getur til hlítar lýst yndislegum barnshlátri, fremur en hægt er að mála sólskin í skógi. Andlitið á honum afa var svo alvarlegt, að vel hefði mátt hafa það í biblíumyndum. En hann gat ekki að því gert, að hafa eftirlæti á barninu. Afi bar lotningu fyrir bernskunni, hann leitaöi ráöa hjá henni, hann hafði hana í hávegum. Hann veitti nákvæma athygli ilag- renningunni í þessari litlu sál. Hvernig hugsunin brauzt um og orðin klifuðu hærra og hærra, þang- að til þau gátu flogið. Gamla hús- ið, sem þeir bjuggu í, var frá sér numið yfir því að heyra aftur til barnsraddar, tréin líka; og þau töl- uðu um það sín á milli. Páll litli var einvaldur yfir afa sínum. Hann hafði þaö vald yfir honum, er þeir hafa vfir oss, sem glaðir eru. Afi var þræll drengsins. Bíddu, afi ! Og afi beið eftir honum. — Nei, komdu nú ! Og afi kom. En hvað þeim leið vel saman, litla harðstjóranum og gamla þrælnum undirokaða! Annar þriggja ára,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.