Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Síða 24
18 NÝJAR KVÖLDVÖKUR ir, sagði Ranworth, þegar skipin höfðu skipzt venjulegum kveðjum. Skipið fer með ykkur til Bergen og þar hljótið þið að hitta eitthvert brezkt skip, sem fer til Hull eða Grimsby. — Ef þér hafið ekkert á móti því, viljum við helzt sleppa því. Ranworth brosti. — Hvers vegna? spurði hann. — Ég —- ég hef svo fjarska mikla löngun til að vera með í heimskautsleið- angri, flýtti Leslie sér að svara, og for- eldrar okkar vita nú, að við erum óhultir. Leslie talaði mjög sannfærandi. Mögu- leikarnir til heimskautsferðar ögruðu honum. Guy var á annari skoðun. Hann 'hafði lítinn eða engan áhuga fyrir heim- skautsrannsóknum. Hann gat ekki skilið, hvers vegna menn hættu lífinu og geng- ust undir allar þrengingar heimskauts- vetrarins, án nokkurs gagns fyrir heim- inn. Oft hafði hann lent i þrætum við skólabræður sína um það, hvaða hagnað menn hefðu yfirleitt haft af því, að ýms- ir landkönnuðir höfðu fundið suður- og norðurheimskautið. Hafði heimurinn batnað nokkra vitund við þaö, er stjörnumerkið var fest á norðurheimskautið og norski fáninn á suðurheimsskautið. Hafði árangurinn af landkönnun Scotts kapteins, að frátek- inni hetjudáð hans í erfiðleikunum, verið virði allra þeirra mannslifa og þess fjár, er glataðist? Samt sem áður kom Guy ekki með neinar athugasemdir nú. Æfintýraþrá hans var sterk. Hann mundi miklu heldur hafa kosið að vera með í leiðangri til Mið-Afríku, þar sem finna mætti landssvæði, sem vissulega mundu fá hagkvæma þýðingu. En annars var miklu betra að fara í heimskautsför, en að slíta skólabekkjunum. — Löngunina skortir vissulega ekki, sagði Ranworth, en spuniingin hefur aðra hlið. Allir menn á skipinu verða að vinna. Hafið þið nokkra hæfileika, sem orðið gætu leiðangrinum að gagni? — Ég skýt vel með riffli, sagði Guy. — Við lendum varla í stríði við mann- ætur eða því um líkt, sagði Ranworth. Guy hnyklaði brýrnar i vandræðum. Hann gat ekki munað eftir neinu öðru. — Heldurðu, að þú gætir útbúið máls- verð handa tuttugu mönnum? — Gæti það ef til vill, ef það væiá nauðsynlegt, svaraði Guy. Að minnsla kosti mundi ég gera það sem ég gæti. — Maður kemst langt, ef góður vilji er með í ráðum, sagði Ranworth. Og þú, Leslie. Hvað er hægt að gera með þig? — Ég er vel kunnugur rafmagnsvélum, svaraði drengurinn. — Einmitt það? Hvaða tegundum helzt? spurði foringi liðveizluleiðangurs- ins. Þú ert nokkuð ungur til þess. Ég hélt þú værir í skóla ennþá. — Já, en ég hef samt lært rnargt af föður mínum. — Og hann heitir Decimus Ward. Er það ekki rétt? — Og hvernig hafið þér komizt að því? spurði Leslie dálítið hissa. — Það er leyndarmál, svaraði Ran- worth og deplaði 'augunum framan í Guy. Satt að segja er það hann, sem hefur sett saman vélsleðann, sem við höfum með okkur. Þá þekki ég dálítið til hans, sagði Leslie. Pabbi sýndi mér teikningarnar og skýrði fyrir mér hina einstöku hluta. Auðvitað sagði hann mér ekki, hver kaupandinn væri. — Þú vilt líklega gjaman sjá hinn endanlega árangur af vinnu föður þíns? spurði Ranworth, og þegar hann sá hve drengurinn varð eftix-væntingarfullur, bætti hann við: Jæja, komið þið þá. En

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.