Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Side 54

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Side 54
48 NÝJAR KVÖLDVÖKUR húsbónda sínum, til íslenzka lærisveins- ins og allra prófessoranna. Var það mjög tiginn maður þar í borginni. Með heim- boðinu til íslendingsins fylgdi stúdents- fatnaður, mjög vandaður, og þá er hann aðgætti númerið á húsi því, er hann var boðinn til, sá hann, að það var sama húsið og júngfrúin hafði leitt hann áður að. Að prófinu afstöðnu, fóru þeir síðan, prófessorarnir og íslendingurinn, til heimboðsins. Þá er þeir koma að húsinu, kemur skrautbúinn þjónn út á móti þeim og leiðir þá inn í forsalinn. Þar kom hús- bóndinn á móti þeim og biður þá að vera velkomna, og leiðir þá síðan inn í sal mikinn. Þar er síðan setzt að veizlu mik- illi og er þar dýrlegt borðhald og skemmtilegar borðræður. Og segist hús- bóndinn vilja segja þeim sögu eina litla. »Það voru einu sinni margir skóla- sveinar í borg einni, nálægt hundrað. Það var venja þeirra, að gista mjög oft hjá gestgjafa einum ríkum og lánaði hann þeim þá tíðum stúlkur til hvíluneytis, mót ærnu fé. Einn skólapilturinn var fá- tækastur þeirra allra, en vandaður mjög og ráðsettur, og aldrei með hinum í þess- um erindagjörum. Að lyktum fór hann þó einu sinni, fyrir áeggjan hinna. — Stúlka sú, er hann kaus að hvíla hjá, bað hann að gefa sig lausa af því skil- yrði, og gerði hann það. Var hann þó búinn að kosta til þess meginhluta pen- inga sinna«. »Hvaða skylda finnst ykkur liggja á stúlku þessari gagnvart skólapiltinum, er sýndi henni svo mikinn góðvilja?« »Það er sjálfsagf, að stúlkan væri skyld til að giftast skólapiltinum, ef hann æskir þess«, segja prófessorarnir, »Það hygg ég líka«, segir herramaðui’- inn. »Og þetta var dóttir mín«. mælti hann. Sagði hann þeim síðan alla sögu, að dóttir sín hefði verið á skemmtigöngu úti á stræti eitt kvöld, og þá hefði gest- gjafinn komið að henni og ginnt hana til herbergja sinna, sleppt henni síðan aldrei út þaðan aftur. Og þannig hefði hann tælt til sín margar stúlkur, og lánað þær út til rekkjuneytis, bæði skóla- piltunum og fleiri. Gestgjafinn var alltaf vanur að taka þær úr rúmunum frá skólapiltunum á morgnana og loka þær svo aftur inn í klefa sína. Það var skömmum tíma áður en íslenzki skóla- pilturinn kom til gestgjafans, sem hann hafði náð herramannsdóttur einni á vald sitt; var hann því engum búinn að lána- hana til hvíluneytis, enda hafði hún ekkí verið auðveld í höndum hans. En fyrir þá sök gat hún komizt út úr húsum hans, að hún var fyrri á fótum um morguninn- en hann og gat einhvernyeginn komið sér fyrir með að komast út um bakdyr húss- ins. Herramaðurinn vildi ekki ákæra gestgjafann fyrir breytni hans áður en hann vissi hvaða vitnisburð íslendingur- inn fengi við embættisprófið. Og var hann útskrifaður með lofi. Tók herra- maðurinn hann þá til sín, gaf honum dóttur sína, gerði hann að aðstoðarmanni sínum í embættinu og útvegaði honum síðan fyrirheit um embættið eftir sinn dag. Herramaður þessi var í mjög háu, mikilsvirtu embætti, og hlaut fslend- ingurinn það að honum látnum, og hafði það á hendi alla æfi. Vel féll á með þeim hjónum, en ekki er getið barna þeirra. Oft komu íslendingar til hans og tók hann þeim jafnan vel, en ætíð hafði hann æfintýri sitt í kyrrþey. Þá er hann var orðinn gamall maður, sagði hann það einhverjum íslendingi. Barst þannig saga þessi til íslands, og dreifðist hún þar út meðal manna. — Málefni gestgjafans um kvennaránið, kom fyrir rétt, og var hann dæmdur frá eignum sínum og gerður út- lægur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.