Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 29
ÆFINTÝRI ÚR ÍSHAFINU 23 VI. ÓvH'iil óþægindi. Til allrar lukku voru nægar birgðir af hlífðarfatnaði í skipinu, svo að yfir- mennirnir og hásetarnir, sem höfðu ver- ið á þilfari í flóðinu, gátu fengið þurr fot að klæðast í. I næstu þrjár stundir sigldi Stonnleigh skipstjóri í austlæga stefnu. Nú þegar þokunni var létt, gátu menn séð hinn mikla hafísjaka á kulborða, sem hafði nærri því orðið »Polarity« að grandi. — Að minnsta kosti finnn enskar míl- ur á lengd og tvö hundruð feta hár, sagði ’Travers. — Hvað er það, sem sporðreisir jak- ana? spurði Guy. Sex sjöundu hlutar þungans eru þó undir vatnsborði. Það er einkennilegt, að þeir skuli þá geta oltið. — Jú, ísinn bráðnar að neðan, þangað til þunginn verður meiri ofansjávar, og síðan — ja, þú hefur einmitt séð þetta clæmi þarna taka fallegt heljarstökk, svaraði annar stýrimaður. Finim eða sex fyrstu stundirnar voru allir skipverjar að gera við skemmdim- ar. Framsiglan var reist aftui', og loft- netið að þráðlausa símanum, sem slitnað hafði, var fest upp. Því miður var ekki hægt að bæta upp brotnu bátana. Nú voru aðeins tveir eft- ir úr timbri. Auk þess voru tveir saman- brotnir segldúksbátar. Til notkunar í auðum sjó voru þeir ómetanlegir, en veruleg hætta var á, að dúkurinn gæti skorizt á hvössum brúnum rekíssins. Um miðnætti tók Stormleigh skipstjóri sólarhæð, og tilkynnti, að »Polarity« væri sextíu enskar mílur suð-suðaustur af Desolation Inlet. Ef engin ófyrirsjáanleg töf yrði, mundi hjálparleiðangurinn hafa náð ákvörðunarstaðnum um sexleytið að morgni. Til allrar ógæfu rakst skipið á íshellu, — auðan, blágráan ísfláka, sem aðeins var með vökum á stöku stað, og hreyfð- ist til suðurs. — Þetta var óheppilegt, herra Ran- woi’th, sagði Stormleigh skipstjóri. Ranworth yppti öxlum óþolimnóðlega. — Við verðum að brjóta okkur leið, sagði hann. — Við munum reyna það, svaraði skip- stjórinn. Við eigum það á hættu að lenda í sunnan ofviðri, og gamla »Polarity« mun ekki verða mikils virði innilokuð í slíkri ísbreiðu. En ég er þrátt fyrir það fús á að reyna það. — Gott, sagði Ranworth. Hvaö leggið þér til að gert verði? — Halda áfram meðan unnt er. fsinn er ef til vill aðeins þunnur, og það ex-u miklar líkur til, að hann leysist sundur. Ef það vill ekki svo vel til, verðum við að sprengja okkur ál. Það eru tíu líkur gegn einni, að íshellan sé ekki mjög breið. — En ef breidd hennar er margar míl- ur? spurði Ramvorth. — Þá verðum við að varpa akkerum á ísnum og halda áfram með sleðann. Þeg- ar leiðangurinn er búinn til heimferðar hefur ísinn kannske leystst sundur. — Það lítur út fyrir að vera eina ráð- iö, sagði foringi leiðangursins. Ég ætla að biðja Hawke að hafa sleðann tilbúinn. Þegar »Polarity« nálgaðist íshelluna, var vélin stöðvuð. Annar segldúksbátur- inn var settur á flot,. og honurn róið að ísbrúninni. Þegar hann kom aftur, sagði liðsforinginn, sem verið hafði með, að ís- inn væri veikur og skipsstafninn mundi vissulega sigrast á honum. Skipið hélt þá áfram inn í ísbreiðuna. Þegar stálstafninn skarst inn í hana, hrökk ísinn i glitrandi smámola á báðar hliðar. Nálega eina enska mílu komst »Pola-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.