Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1935, Blaðsíða 47
NYTJAJURTIR 41 að svefninn sé eðlilegt þreytuástand heil- ans eftir langan starfstíma, en í því sam- bandi gleymist oft að geta þess, að slíkt er algerlega einstætt fyrir heilann, af líf- færum vorum þarf ekkert svo langa hvíld. Ýmsar taugastöðvar vinna hvildar- laust allan sólarhringinn, og hægt er að láta vöðva starfa án hvíldar, ef vinnu- hraði þeirra er aðeins hæfilega ákveðinn. Þess er og að minnast, að þreytukennd sú, er vér vanalega eignum vöðvunum, er i raun réttri ekki í þeim, heldur í tauga- stöðvum þeim, er vöðvunum stjórna. Það er því á engan hátt hægt að fullyrða að það sé eins auðsætt, að vér þurfum að sofa eins og að vér þörfnumst fæðu og andrúmslofts. Spurningunni, hvers vegna svefninn sé nauðsynlegur er því enn ó- svarað með þeim rökum, sem fullnægj- andi eru. Þá skal að lokum skýrt frá sjónarmið- um lífeðlisfræðinga nútímans um eðli svefnsins. Það er kunnugt að taugafrum- umar geta sent frá sér boð, er vekja aðr- ar taugafrumur til starfa, en þær geta einnig sent boð til frumna um að hætta starfi. Slík hindrandi starfsemi þekkist víða í taugakerfinu. Skoðun manna er því sú, að svefninn stafi af slíku hindr- andi starfi ýmissa hinna æðri fruma í stóraheilanum. Hindranir þessar geta komið fram með ýmsu móti. Það hefur tekizt að finna í miðhlutum heilans taugastöðvar, sem senda hindrunarboð til ýmissa annarra frumna í stóra heilanum. Við utanaðkomandi áhrif eða sjúkdóma í umræddum heilahlutum, verður því ann- aðhvort, að hann sendir óaflátanleg hindrunarboð, svo að einstaklingurinn, sem sýkzt hefur fellur í svefn, sem enzt getur ánim saman, eða ef heilahluti þessi eyðileggst t. d. af skotsárum, þá getur maðurinn ekki sofnað á eðlilegan hátt, því að hindrunarstöðin er úr sögunni. Ðæmi þessa þekkjast úr stríðinu, þar sem skotsár hafa valdið því, að menn ekki gátu sofnað árum saman. Þessi til- gáta um að svefninn stafi aðeins af hindrandi taugastöð í heilanum, virðist hafa opnað ýms ný sjónarmið í sambandi þar við. Með þessu móti verða skýrð þau tilfelli, þegar svefninn ræður ekki nema að nokkru leyti yfir líkamanum. Má í því sambandi benda á svefngöngur og svefn- tal. Þá vinna menn störf, sem þeim er algerlega ókleift í venjulegum svefni. Svefnhindrunin nær þá ekki til þeirra líffæra, sem framkvæma hreyfinguna. Þá er og kunnugt, að margir menn sofa vært, hverskonar hávaði sem er í kring- um þá, að ef til vill einu hljóði undan- teknu. Þau hljóðáhrif ein geta náð vit- und þeirra. Eitt hið kunnasta dæmi í þessu efni, er móðirin, sem sefur vært, enda þótt hátt sé haft í kringum hana, en hrekkur upp við minnsta hljóð eða hreyfingu barns síns. Hér hugsum vér oss að hindrunaráhrifin, sem flestar eða allar frumur stóra heilans eru undir- orpnar.í venjulegum svefni, nái ekki til nokkurra frumna, sem síðan reynast eins konar viðtæki einmitt þeirra áhrifa, sem um er að ræða í hvert skipti, í hinu urn- rædda dæmi hljóðsins frá barninu. Þá hafa og nýjustu rannsóknir leitt í ljós ýmislegt, er bendir til þess, að svefn- frumurnar í miðheilanum sendi frá sér hindrunarboð vegna þess, að þær verði fyrir áhrifum áf kirtilsafa heiladinguls- ins. í kirtilsafa þessum hefir meðal ann- arra efna fundizt bróm. Vér verðum því að líta á svefninn sem starfsemi taugakerfisins. Vér vitum að hann er oss nauðsynlegur, enda þótt ekki sé auðsætt hvers vegna svo er. Hitt er einnig víst, að svefninn er fyrirbrigði, sem verður því nauðsynlegra á því hærra andlegu þróunarstigi, sem lífveran stend- ur. — Steindór Steindórsson frá Hlöðum, 6 L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.