Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Side 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Side 17
FINNLAND 11 ir verið kóngur í sínu litla ríki og ekki metist þar um við neina. Aðalkorntegundir Finnlands voru frá fornu fari rúgur og bygg, hafra ræktuðu þeir nokkuð. Fyrrum gat þjóðin kornfætt sig, að minnsta kosti í góðum árum, en yrði uppskerubrestur varð oftast hung- ursneyð, á þeim árum lærðist Finnum að blanda möluðum furuberki 1 brauðið. En síðar þegar fólkinu fjölgaði, hefir orðið að flytja inn korn, þrátt fyrir geisilegar framfarir í ræktun og framleiðslu. Þann- ig hefir rúgframleiðslan næstum ferfald- ast á síðustu 20 árum. Aukning hveiti- ræktunarinnar gengur hins vegar æfin- týri næst. Árið 1917 var hún rúmlega 6 þús. smálesta, en 1937 nam hún 208 þús. smál. Þessa miklu aukningu má að mestu leyti þakka vísindalegum rannsóknum og kynbótum, sem gerðar hafa verið á hveitiafbrigðum, sem ræktuð eru. Áður var naumast talið fært &ð rækta þar hveiti, en við kynbæturnar hafa skapast stofnar, sem ekki einungis þola hið óblíða loftslag landsins, heldur einnig gefa ríku- legan ávöxt. Eins og þetta dæmi sýnir, hafa Finnar ekki hikað við að taka vís- indin í þjónustu atvinnuveganna, þeir hafa þegar hrundið þeirri kenningu, að bókvitið verði ekki látið í askana. Milli báskólans og annarra vísindastofnana landsins annars vegar og atvinnufyrir- tækjanna og framleiðslunnar hins vegar, er hin nánasta samvinna, og Finnar telja sig áreiðanlega ekki hafa efni á að for- smá kenningar og tillögur vísindamanna sinna. Athyglisvert er einnig hve margt háskólalærðra manna og vísindamanna hafa átt sæti í stjórn landsins síðan hún varð innlend, þar er að hitta fjölmarga prófessora og doktora. Skemmst er þar að minnast að fyrrverandi forsætisráðherra, A. K. Cajander, er einn ágætasti vís- indamaður Evrópu í skógfræði, og hefir ritað geisimikið um skóga- og mýragróð- ur. Sýnir þetta, að bæði fylgjast vísinda- mennirnir með í hinu daglega lífi og að þjóðin kann að meta þá og treystir þeim, en lítur ekki á þá eins og einhverjar aumkunarverðar vankakindur eins og sumstaðar er lenska. Af kvikfjárækt leggja Finnar mest stund á nautgriparækt. Standa þeir mjög framarlega í þeim efnum, svo að fram- leiðsla þeirra þykir jafnvel standa fram- leiðslu Dana á sporði, en þeir hafa lengi notið heimsfrægðar fyrir ágæti mjólkur- afurða sinna. Mjólkurvöruframleiðsla Finna hefir ferfaldast á síðustu 20 árum, og nam hún árið 1937 6V2 miljarð marka (finnskt mark jafngildir 10 aurum). í nánu sambandi við landbúnaðinn hefir og skógarhöggið staðið, en þess er nokkuð getið áður. Ein megin lyftistöng finnska landbún- aðarins hafa samvinnufélögin verið. I varla nokkru landi er samvinnufélags- skapur jafn útbreiddur og þar, og ferða- maður, sem til landsins kemur, getur varla dvalið þar svo daglangt, að hann verði hans ekki var í einhverri mynd. Þannig er t. d. fjöldinn allur af matsölu- stöðum í bæjunum rekinn af samvinnu- félögum, og því mega menn treysta að þeir fá ekki annars staðar betri né ódýr- ari mat. Má í því sambandi minnast á kaupfélagið „Elanto“ í Helsingfors, sem rekur matsölustaði að heita má í hverri götu. Sölubúðir samvinnufélaganna eru hvervetna, og úti um landið eru mjólkur- bú, sláturhús, lánsstofnanir og hverskyns verzlun rekin af þeim. Svo er mælt, að varla sé til sú sveit, að þar sé ekki sam- vinnufélag, og fáir eru þeir bændur, sem ekki eru meðlimir einhvers þeirra. En samvinnufélögin eru ekki síður rekin af verkalýðnum í bæjunum, er þeim þakkað það mjög, að lífskjör verkafólks hafa batnað að verulegu leyti, enda þótt kaup- gjald hafi verið fremur lágt einkum 2*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.