Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Qupperneq 18
12 NÝJAR KVÖLDVÖKUR vegna hins lága gengis marksins. Sam- vinnufélögin hafa hins vegar haldið niðri vöruverðinu, og mörg þeirra hafa rekið stórbú, til þess að sjá meðlimum sínum fyrir landafurðum með lægsta kostnaðar- verði. Talið er að meðlimir finnsku sam- vinnufélaganna hafi verið 605 þúsund ár- ið 1938. „Samvinnuhreyfingin finnska., sem hvílir á hinu fyllsta lýðræði er einn af hornsteinunum undir lýðræðinu í landinu“, segir í einu finnsku riti um land ogþjóð. Á líkan hátt og landbúnaðurinn, hefir iðnaðurinn einnig vaxið hröðum skrefum á síðustu áratugum. Undirstaða hans er skógurinn, hann leggur til það hráefnið, sem mest er af, en einnig er um nokkra málmvinnslu að ræða. Orku til iðnaðar- ins fá Finnar úr fljótum sínum. Nokkra hugmynd um aukningu iðnaðarins gefa eftirfarandi tölur. Síðan 1920 hefir tala iðnverkamanna nær tvöfaldast og eru þeir nú full 200 þús. Verðmæti iðnframleiðsl- unnar var á árunum 1921—25 að meðal- tali rúml. 8 miljarðar marka, en nam árið 1937 21 miljarð. Helztu iðnaðarborgirnar eru Helsingfors, Ábo, Tammerfors og Kotka. Annars eru stórverksmiðjur oft reistar utan borganna við árnar, þar sem hentugast er um virkjun. Langmikilvæg- asta iðnaðargreinin er timburvinnzla í einhverri mynd, enda flytja Finnar út mest allra þjóða af unnu timbri að und- anteknu Canada, eða alls 18% af heims- útflutningnum. Svíþjóð stendur ein allra þjóða framar í útflutningi trjákvoðu (cell- ulose), en Svíþjóð og Canada í pappírsút- flutningi. Mikill iðnaður er einnig fyrir innlendan markað og fer innflutningur iðnvara stöðugt minnkandi. Með þessum feiknaátökum í atvinnuvegunum hefir Finnum tekist, ekki aðeins að reisa hið helsærða land úr rústum eftir ógnir borg- arstyrjaldarinnar, heldur einnig að vinna bug á atvinnuleysi og skapa traustan rík- isfjárhag og furðumikla almenna vel- megun, þegar tekið er tillit til allra ástæðna. En vitanlega hefir þetta því að- eins tekist, að þjóðin er hvorttveggja í senn iðin og sparsöm. Lífsþægindi manna hafa aukist með hverju ári og viðurværi batnað stórlega. Innieignir í sparisjóðum hafa aukist úr 997 miljónum marka 1920 í 7603 miljónir 1938. Ríkisskuldirnar hafa stórum minnkað, og svo er talið, að Finn- ar hafi einir allra Evrópuþjóða ætíð stað- ið í skilum með stríðsskuldir sínar i Bandaríkjunum. En samt hafa ekki aðeins hirt um að græða fé. Þeir hafa lagt fram stórar fúlg- ur fjár til hverskyns menningar- og mannúðarmála, enda var margt í þeim efnum í kalda koli að loknum ófriðnum, en þjóðinni einnig Ijóst, að einungis í krafti menningarinnar var henni tryggð- ur tilveruréttur meðal frjálsra þjóða. En mesta furðu vekur samt, hvað hefir unn- ist í þessum efnum, þegar þess er gætt, að þeir hafa stöðugt lagt fram þungar fórnir vegna landvarnanna. Enda þótt svo væri um búið. að fengnu frelsi Finna, að samningar væru gerðir og eiðum bundnir við Rússa um grið og tryggðir, þá ugðu Finnar samt alltaf um, að ekki væri þar allt af heilum hug, eins og nú er ljóst orðið. Þeir hafa stöðugt lagt kapp á að auka her sinn og treysta víggirðing- ar á landamærunum til austurs. Hefir her þeirra verið furðustór og búinn með ágætum. í nánu sambandi við hinn fasta ríkisher hafa landvarnarfélögin (Skydds- kárene) verið. Þau stunda fullkomnar heræfingar og meðlimir þeirra reiðubúnir að fara í stríð, hvenær sem kallið kemur, en kostnaðurinn við þau borinn að veru- legu leyti af meðlimum þeirra og öðrum einstaklingum, en styrkt voru þau af rík- inu og undir eftirliti þess. í sambandi við landvarnafélögin eru kvenfélögin „Lotta Svárd“, sem kennd eru við eina kven-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.