Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Síða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Síða 19
FINNLAND 13 hetjuna í kvæðum Runebergs. Félög þessi æfa meðlimi sína við hjúkrun og hvers- kyns störf, sem að gagni mega koma á vígvöllunum er til styrjaldar kemur. Er talið að „Lotturnar“ sýni engu minni hetjudáðir en karlmennirnir í yfirstand- andi styrjöld. Árleg útgjöld ríkisins til landvarnanna hafa verið 502 miljónir marka, og sýnir það bezt hversu þungur sá skattur er. V. MENN OG MENNTIR. Finnar hafa ekki látið menntun og menningu undir höfuð leggjast. Þeir hafa bæði fyrr og síðar eignast margt ágætra manna, sem getið hafa sér orðstír víða um lönd í bókmenntum, vísindum og list- um. Alþýðumenntun er ágæt í landinu, og hefir verið það alllengi, hafa Finnar í því efni mjög fetað í fótspor hinna norr- ænu þjóðanna, en æðri menntun er einn- ig í ágætu lagi. Háskóli var reistur í Ábo árið 1640, var hann síðar fluttur til Hel- singfors og er hann nú aðalháskóli lands- ins. Kennsla fer þar fram bæði á finnsku og sænsku. Þegar deilurnar voru sem harðastar milli þjóðflokkanna í landinu reistu sænskumælandi menn háskóla í Ábo, en þá stofnuðu Finnarnir þar einnig háskóla. Þeir eru þó báðir miklu minni og af meiri vanefnum gerðir en háskólinn í Helsingfors, en samt hinar beztu menntastofnanir. í landinu eru 218 menntaskólar af þeim eru 175 finnskir en 43 sænskir, og yfirleitt sýna skýrslur til- tölulega meiri skólasókn Svía en Finna. Skólakerfi sitt hafa Finnar sniðið mjög að sænskum hætti bæði lægri skóla og mðri. Auk menntaskólanna er margt seðri framhaldsskóla. Þegar hinni almennu barnafræðslu sleppir er margt af unglinga- og lýðskól- um, þar á meðal allmargir lýðskólar í sniði við lýðskólana dönsku, sem kennd- ir eru við Grundtvig. Hafa skólar þessir allir eflt mjög almenna menntun og heil- brigðan þjóðaranda. Merkilegur þáttur í finnskri alþýðumenntun er hin frjálsa fræðslustarfsemi, sem rekin er af ýmsum félögum og félagasamböndum í landinu. Upphafsmenn þeirrar hreyfingar voru stúdentar og aðrir háskólamenn á öldinni sem leið, var Snellman þar einn í broddi fylkingar. Af þeirri hreyfingu er sprott- inn félagsskapurinn „Finska folkupplys- ningsállskapet“, er stofnað var 1874, og hefir starfað síðan með bókaútgáfu, fyr- irlestrum og söng- og hljómleikahátíðum, er einkum hið síðastnefnda sérkennilegt fyrir Finna og sýnir meðal annars, hve djúpar rætur hljómlistin á í þjóðinni. Nokkru yngri eru ungmennafélögin, bæði finnsk og sænsk, og starfa þau að mörgu leyti á líkum grundvelli. En samt sem áð- ur telja finnskir fræðimenn að merkasti þátturinn í þessari frjálsu fræðslu og menntastarfi sé unninn af bókasöfnum og lestrarfélögum. Byrjað var að stofna þau um 1840, hefir því starfi verið haldið ó- trauðlega áfram síðan og er nú bókasafn í hverri sveit og hverjum bæ og mörg þeirra hin myndarlegustu. Stjórn þessara bókasafna hefir verið í höndum ýmissa félaga, en leitazt hefir verið við að sam- ræma hana og leiðbeina félögunum um bókavörzlu og bókaval, einkum úti um hinar dreifðu byggðir landsins. Eftir 1920 tók ríkið að styrkja bóka- söfnin, og eru þau síðan undir opinberu eftirliti, en eigendur þeirra eru ýmist sveitarfélögin, lestrarfélög eða einstakir menn, en öll geta þau orðið aðnjótandi ríkisstyrks, ef þau uppfylla tiltekin skil- yrði. Allverulegur hluti ríkisstyrksins er greiddur bókasöfnunum í bókum, sem valdar eru af bókasafnsstjórn ríkisins. Þegar rætt er um þjóðmenningu Finna, má sízt af öllu gleyma íþróttunum, en þær eru snar þáttur í þjóðaruppeldi og menn-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.