Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 24
18 NÝJAR. KVÖLDVÖKUR Jónssyni, tengdaföður Sæmundar Sæ- mundssonar skipstjóra. Jón Hrólfur hafði einstakt gaman af að ganga fram af fólki með ýmsum kúnstum, sem komu oftast fram í þeirri mynd, að hann lagði sjálfur á sig einhverjar þraut- ir eða innti af höndum afreksverk, sem ekki tíðkuðsut þar um sveitir. Það var nokkurs konar keppni um met, eins og það myndi vera kallað nú á dögum. Einu sinni bar það við, að Jón Hrólfur var fenginn til þess um krossmessuleytið að sækja unga stúlku inn að Grýtubakka í Höfðahverfi. Átti hún að fara vistferlum út í Fjörðu. Var mikill snjór á Leirdals- heiði og versta færð, nema á skíðum. Far- angur stúlkunnar var nú að vísu ekki þungur né fyrirferðarmikill, að öðru leyti en því, að hún átti stóra kommóðu. Þótti stúlkunni leiðinlegt að þurfa að skilja kommóðuna eftir, enda óvíst, hvenær hún gæti fengið hana flutta. Um morguninn, þegar þau Jón Hrólfur og stúlkan voru ferðbúin, var bjart og gott veður og sunnanvindur. Stúlkan hafði með sér skíði, og voru nú horfur á þungri færð, þegar upp á heiðina kæmi. Jón Hrólfur sagði stúlkunni, að hún skyldi ekkert vera að róta til í kommóðuskúffunum, og væri nú réttast, að hann héldi á kommóðunni út eftir með því, sem í skúffunum væri. Var nú heldur brosað á Grýtubakka, með- an Jón Hrólfur var að vefja reipin utan um kommóðuna. Bar hann hana undir fötlum. Segir nú ekki af ferðum þeirra Jóns Hrólfs og stúlkunnar fyrr en þau komu út í Hvalvatnsfjörð um kvöldið. Þau höfðu fengið vonda færð á skíðunum, meðan þeirra naut við, og bullandi aura og eðju, eftir það er komið var út fyrir Hávörður. En aldrei losaði Jón Hrólfur við sig kommóðuna, en tyllti sér þó ein- stöku sinnum niður á leiðinni. Var komm- óðan vegin með því, sem í skúffunum var, og stóð hún í 90 pundum að þyngd. Hafði Jón Hrólfur gaman af þessu og það því fremur sem hann vissi ekki til þess, að neinn maður hefði lagt það upp að bera stóra kommóðu á bakinu alla leið norður yfír Leirdalsheiði, enda blöskraði mörg- um, að hann skyldi vinna það til að leggja annað eins á sig að raunalausu. Verður áreiðanlega bið á því, að þessu meti hans verði hnekkt. Milli Hvalvatnsfjarðar eða Austara- fjarðar og Flateyjardals er hrikalegui fjallgarður, sem gengur í sjó fram. Eru þar við fjöruna á langri leið hamrar og hengiflug, sem í daglegu tali kallast Vík- urbakkar, alla leið vestur að svonefndu Stakkshorni Á leið þessari eru margar gjár, sem skerast inn í þessa ægilegu hamra, en þeir fara heldur lækkandi, eft- ir því sem austar dregur frá Stakkshorni. Verður þar eins og dálítill slakki í bakk- ana austarlega og kallast Lækjarvík. Margir forvaðar eru á þessari leið, og er oft örðugt að klöngrast yfir þá, nema með fjöru og alveg í kvikulausum sjó. Aðrar tvær leiðir voru farnar austur á Flateyj- ardal. Var önnur leiðin nefnd Sandskarð, og var þá farið upp brattan dal upp frá Kaðalstöðum, sem stendur framan til við þverhnípt fjall, svonefnt Bjarnarfjall. Sandskarðið er snarbratt og ófært flest- um mönnum, nema um hásumarið. Hin leiðin, sem farin var einstöku sinnum, er norðan til í Bjarnarfjallinu og heitir Skriður. Þær eru einnig snarbrattar, en gínandi hamrar á báða vegu og hengiflug á aðra hönd. Er ægilegt um að litast á svonefndum Skriðuhrygg og horfa niður fyrir sig. Eru skriður þessar oftast ófærar að vetrar- lagi nema í því meiri fönn. Getur þá sett svo mikinn snjó í Skriðurnar, að þær séu færar fyrir bratt-genga menn, án þess að þeir eigi víst að hrapa. í Bjarnarfjallinu nokru sunnar hafa hlaupið mikil snjóflóð, sem valdið hafa miklu tjóni á skepnum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.