Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Síða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Síða 27
ÞÁTTUR AF JÓNI HRÓLFI BUCK 21 ipáskaleytið, og tók hann sér gistlngu á Kussungsstöðum rétt fyrir hátíðina. Jón Hrólfur átti þá heima á Kussungsstöðum. Þetta var um það leyti, sem Sæmundur Sæmundsson skipstjóri var trúlofaður Sigríði Jóhannesdóttur. Sæmundur var þá formaður fyrir hákarlaskipi, sem nefnt var „Akureyrin“. Var Óli bróðir Sigríðar háseti hjá Sæmundi. Rétt fyrir páskana hafði „Akureyrin“ komið inn úr veiðiför eða túr eins og það var kallað. Var nú undið að því á Kussungsstöðum að koma ýmsum flutningi til þeirra Sæmundar og Óla, svo sem pottkökum, smérbögglum og hreinm fötum og það tekið til ráðs að senda Jón Hrólf með þennan bagga inn á Grenivík í veg fyrir skipið. Ber nú svo við, að hann gat orðið póstinum samferða, en svo var mikill snjór í Hvalvatnsfirði, að hvergi sást á dökkan díl í brekkunum ofan við Kussungsstaði. Jón Hrólfur var stríðinn, og hafði hann því gaman af að vera póstinum samferða. Uósturinn var léttur á sér og hafði ekk- ert að bera, nema litla hliðartösku með nokkrum sendibréfum. Var hann hissa á því um morguninn, þegar þeir lögðu upp frá Kussungsstöðum, að Jón Hrólfur skyldi leggja það upp að rogast með út- troðna poka, bæði í bak og fyrir. Henti póstur gaman að þessu um morguninn, meðan þeir voru að borða. Þeir gengu báðir á skíðum, stakk Jón Hrólfur upp á því, að þeir skyldu fara skemmstu leið fnn á Grenivík, svokallaðan Trölladal, Veður var milt og gott um morguninn og leit útf yrir sunnanátt og hláku. Færðin var þung á skíðunum í brekkunum upp af Kussungsstöðum. Sást það síðast til ferða þeirra, að þeir voru farnir að þreyta kappgöngu. Var pósturinn fyrst nokkurn spöl 4 undan Jóni Hrólfi, en þegar á leið, úró heldur saman með þeim. Þegar þeir kurfu upp af brúninni, var Jón Hrólfur •fcúinn að ná póstinum, og vissu menn að svo stöddu ekki frekar um þetta ferðalag. Skíðafærið versnaði um daginn, og gerði asahláku um kvöldið; Þetta var laugar- daginn fyrir páska. Var nú mörgum Fjörðungum forvitni á að vita, hvernig þeim Jóni Hrólfi og póstinum hefði reitt af á þeSsari kappgöngu þeirra á Trölla- dal. Þegar farinn er Trölladalur upp frá Kussungsstöðum, er haldið 1 suðvestur, og er hrikalegur fjallgarður til hægri handar. Fyrir botni dalsins er kallaður Þröskuldur, og er það suður-öxlin á Kald- bak á Látraströnd. Þegar þangað er kom- ið, er víðsýni mikið yfir Eyjafjörð, út fyr- ir Hrísey, og miklar brekkur niður að i'ara ofan í Grenivík. Er það nú af þeim félögum að segja, að Jón Hrólfur þreytti gönguna svo hart, að hann skildi póst- manninn eftir í þessari þungu ófærð ut- an við miðjan Trölladal. Stakk Jón Hrólf- ur höfðinu í sunnanvindinn, sem hann hafði í fangið alla leið og vissi ekkert, hvað um hinn varð, eftir það er þeir skildu. Hraðaði hann nú göngu sinni sem mest hann mátti með pottkökurnar og smérbögglana ofan á Grenivík. Þegar á Grenivík kom, var Jón Hrólfur bæði sveittur og þyrstur. Frétti hann þá, að „Akureyrin“ væri komin fram hjá. Hafði Sæmundur haft það til orðs, að sigla út á Þorgeirsfjörð og vera heima um páskana. Brá Jóni Hrólfi mikið við þessa fregn. Þóttist hann nú grátt leikinn að þurfa að rogast með baggana svona aftur og fram, og reiddist ákaflega. Fékkst hann ekki til að drekka kaffi eða leysa af sér baggana, en þambaði í sig þar á bæjarhlaðinu á Grenivík 6 merkur af sterkri skyrblöndu. Sneri hann svo heim aftur sömu leið upp á Trölladal án þess að virða nokkra menn viðtals. Þar ofar- lega í fjallinu, upp af Grenivík, mætti hann póstinum, lúnum í þessari vondu færð, en nú hafði hann undan að sækja,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.