Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Blaðsíða 29
1. M. Hull Synir arabahöfðingjans. ANNAR KAFLI. (Framhald). Það var síesta-tími (hvíldar-tíminn). Hljóð og þung ró og friður ríkti í tjald- ■búðunum. En sá friður mundi brátt verða i’ofinn af annsemd þeirri og umsvifum, sem alltaf ríkti þar, jafnvel þótt höfðing- ffln væri eigi heima. Hann hafði ætíð haldið strangan hermennsku-aga, og þannig hafði það verið árum saman. Kynkvísl þess var herská mjög og um- brotagjörn og hafði því fyrir löngu öðlast sérstöðu meðal hinna kynkvíslanna í landinu. Nú hafði að vísu ríkt friður ár- um saman, en kynkvísl höfðingjans var alltaf að vonast eftir styrjöld, sem þó aldrei kom. Því að engin hinna kynkvísl- anna umhverfis þá áræddi að ráðast á þá. Ættkvísl þessi var víðspurð fyrir hreysti sína og trúarstyrk og var talin sérstæð á þeim slóðum. Átrúnaður þeirra var eigi rett-trúnaðarlegur, en hann var einka- eign þeirra og engra annara. Um langt skeið höfðu hinar kynkvíslirnar litið upp til þeirra með hjátrúnarkenndri lotningu. Ættstofn þessi hafði því all mikið sjálfs- alit og var fastheldinn á ættarvenjur smar. Hvíldi því yfir honum einskonar öulrænn bjarmi í augum nágranna hans. Og viðburðir síðustu ára höfðu stuðlað því að efla hjátrú þessa. Fæðingu hans hafði borið að undir óvenjulegum ^Hngumstæðum, síðan varð hann kjörinn höfðingi ættarinnar, og auk þess voru all margir berkir viðburðir, sem orðið höfðu laondfleygir. Og öllu þessu var trúað víðsvegar um landið. Nú hafði hann verið einræðisherra ætt- arinnar í 25 ár. Og enn töldu menn hans, að hann hefði verið þeim af himnum sendur til að gerast foringi þeirra og höfðingi, sém með sinni undursamlegu fæðingu í þennan heim hefði frelsað hið gamla höfðingjanafn ættarinnar frá glöt- un og gleymsku. Langt norður við yztu takmörk landa- merkjanna lágu um þessar mundir tjald- búðir höfðingjans undir fjallsöxl einni lít- illi, er var yzti rani fjallahryggs nokkurs, er að lokum blánaði í fjarska eins langt og augað eygði. Fáein bækluð tré og vindundin spruttu upp úr sandinum og báru þess vott, að vatn væri þar eigi fjarri. Tjöldin stóðu á víð og dreif út um all- stórts væði. Þau sneru öll í suður gegn opinni eyðimörkinni, og var eigi annað að sjá, eins langt og augað eygði, en endalausar sandölldurnar. Hingað og þangað um sandauðnina sáust svartir blettir á gulum sandinum. Voru það smá- runnar og þyrnar, sem virtust þar settir til að bjarga lífi úlfaldanna. Enda voru þeir sendir út í eyðimörkina á degi hverj- um til beitar á þessu hrjóstuga haglendi. Vopnaðir riddarar voru á verði um- hverfis tjaldbúðirnar. Höfug svefnvær hádegiskyrrð hvíldi yfir öllu. Einstöku manni brá fyrir í tjalddyrum sem allra snöggvast með löngu millibili. Tveir sæl- legir asnar ráfuðu á milli tjaldanna og ráku múlana forvitnislega ofan í allt, sem þeir náðu'til. Spölkorn frá hinum tjöldunum lá tjald höfðingjans, hálf-byrgt inni í litlum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.