Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 31

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Page 31
SYNIR ARABAHÖFÐINGJANS 25 áhrif einnig á menn hans. Og því lengur sem hann hugsaði mál þetta, því vissari þóttist hann um, að nauðsyn bæri til að rannsaka þessar flugufregnir og grafast fyrir orsakir þeirra. Og það varð hann sjálfur að gera, upp á eigin spítur. Og svo hafði hann lagt af stað, einsam- all og fylgdarlaus, eina nóttina. Díana varð eftir heima með tryggða- þjón sinn, Gaston, og Yúsef, fulltrúa höfðingjans, til verndar og aðstoðar. Hún var ekki að hugsa um sitt eigið öryggi, en tilhugsunin um hann og hættur þær, er hann lagði út í, drógu úr henni allan kjark, svo að henni lá við að verða veik og gefast algerlega upp. Þannig leið hver dagurinn eftir annan, og hann kom ekki aftur. Fjórir langir mánuðir............ Hún lagði vasabók sína frá sér og and- varpaði þreytulega. Hvers vegna átti þetta að bætast við ofan á hitt, sem fyr- ir var? Augu hennar fylltust tárum, er hún laut niður að litlum lágborðsskáp og tók mynd þaðan. Varir hennar titruðu, er hún horfði á þessi tvö ungu andlit, báða syni sína. Þeir voru tvíburar, en svo ger- ólíkir sem framast mátti verða. Alveg ósjálfrátt beindust augu hennar fyrst a ðyngri syninum. Þetta var mynd, sem hún hafði tekið sjálf fyrir alllöngu. Henni lá við gráti, er hún virti fyrir sér ondlitsdrætti hans, hvern af öðrum, og leitaði upp allt það, sem olli því, að hann var henni svo ástfólginn. Bæði vöxtur hans og andlitsdrættir minntu greinilega um höfðingjann. Þarna voru sömu hvössu augun undir hnykluðum brúnunum, sami sterki munnurinn.... Þetta var höfðing- inn, eins og hún fyrst hafði kynnst hon- um, áður en ástin hafði mýkt hörkulega andlitsdrætti hans. En samt hafði ástin eigi umbreytt uon- um neitt verulega. Það var aðeins, er hann átti tal við hana, að drættirnir um munn hans urðu mjúkir og hlýir, og sá bjarmi kveiktist í dökkum augum hans, er vakti.íagnandi hjartslátt eins og fyrstu árin. Og það var eigi aðeins í sjón, að feðg- arnir voru líkir, heldur einnig í allri skapgerð. Hafði enda oft lent í hörðu á milli þeirra, þar eð hvorugur vildi láta undan. Og þrátt fyrir það, þótt höfðing- inn væri hreykinn af þessum fallega og stoltas yni sínum, lét hann ekki á því bera og var eigi mildur, er um ókosti hans og glappaskot var að ræða. Þeir minntu hann allt of áberandi á hans eig- in lausbeizluðu æsku. Honum gramdist einnig, að Ahmed ungi sinnti litlu öðru en því að skemmta sjálfum sér. Þannig var sonurinn tíðast á öndverð- um meiði við föður sinn og leiddi því hjá sér að láta í ljósi, hve hann í raun og veru leit upp til höfðingjans. En hann var honum hin fullkomna fyrirmynd karl- mennsku og hreysti. Það féll því ætíð í hlutskipti Díönu að miðla málum milli þeirra. Og þar eð báð- ir aðilar unnu henni, tókst henni að halda skapi þeirra nokkuð í skefjum. Óteljandi sinnum hafði hún verið sátta- semjari milli þeirra, og með náinni þekk- ingu sinni og skilningi á öðrum þeirra hafði hún einnig getað skilið hinn aðil- ann. En myndu þeir þá aldrei læra að skilja hvor annan? Hún hallaði sér aftur á bak í stólnum og andvarpaði. En ef þessari þrákelkni þeirra lyktaði nú með því að upp úr slitnaði algerlega á milli þeirra.... í tjaldbúð höfðingjans giltu aðeins ein lög, og þa ulög voru vilji hans sjálfs. Honum þröngvaði hann hvívetna með sömu harðstjórn og einræði, og hann sjálfur hafði vanist í æsku. Átti nú son- ur hennaar fyrir h.ndum að þola og reyna. 4

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.