Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Qupperneq 52

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1940, Qupperneq 52
4(5 NÝJAR KVÖLDVÖKUR „Eg hefði viljað skrifa þér og þakka þér fyrir þá, undireins og ég fékk þá“, sagði Ella, og kvíðinn hvarf þegar af and- liti Berties. „Þú veizt hvernig mamma er“, mót- mælti hann; „hún opnar öll mín bréf, og ef hún hefði komist að því, að ég gæfi einhverjum gjafir þá hefði þó eitthvað verið að tala um í næsta hálfan mánuð“. „Vissulega, en tuttugu ára —“ byrjaði Ella. „Eg er nú ekki tvítugur fyrr en í sept- ember“, tók Bertie fram í fyrir henni. „Nítján ára og átta mánaða“, hélt Ella áfram, „þá ættirðu að hafa leyfi til þess að halda þínum bréfaviðskiptum fyrir sjálfan þig“. „Það ætti nú svo að vera, en það er nú ekki allt eins og það á að vera. Mamma opnar öll þau bréf, sem koma í húsið, hver sem þau á. Systur mínar og ég hafa gert uppþot út af þessu aftur og aftur, en hún heldur áfram að gera það“. „Eg myndi reyna að venja hana af því, -ef ég væri í þínum sporum“, sagði Ella áköf, og Bertie fann að dýrðin yfir þess- ari velvöldu gjöf hans, sem hann hafði verið svo kvíðafullur út af, hafði nú rok- ið í burtu fyrir þessum óþægilegu hindr- unum, sem risu í kringum þetta. „Er það tilfellið?“ spurði Clovis, vinur Berties hann, þegar þeir hittust um kvöldið í sundlauginni. „Um hvað spyrðu?“ sagði Bertie. „Þegar þú ber þennan sorgarsvip á þér, að þá sé hann sérstaklega áberandi, af því að þú ert svo lítið klæddur. Líkaði henni ekki vasaklútarnir?" Bertie skýrði frá ástandinu. „Það er bölvað, það sérðu sjálfur“, bætti hann við, „þegar stúlka hefir mikið að segja, sem hana langar til að skrifa þér, og getur þá ekki sent bréfið nema ein- hverjar krókaleiðir11. „Nei, það er ekki gott við það að eiga“,, sagði Clovis, „ég verð oft að eyða tölu— verðu af hugviti mínu til þess að finna upp afsakanir fyrir því að hafa ekki skrifað“. „Þetta er ekki til að gera að gamni sínu- yfir“, sagði Bertie ásakandi, „þér myndi ekki þykja það skemmtilegt, ef móðir þín. opnaði öll bréf til þín“. „Eg get ekki tekið fyrir það“. Eg hefi rökrætt um það —“ „Þú hefir ekki notað hinar réttu rök- semdir, geri ég ráð fyrir. Nú, ef í hvert skipti, sem eitt af bréfum þínum væri opnað, þá legðist þú aftur á bak upp á matarborðið meðan stendur á máltíð og fengir flogakast, eða þá að þú vektir allt fólkið í húsinu um miðja nótt, með því að syngja slagara, þá myndi þér verða tölu- vert ágengt. Fólk tekur yfirleitt miklu meira tillit til þess, ef máltíðinni er mis- þyrmt eða næturfriðnum, heldur en til þess, hvort hjarta manns er misboðið“. „Hættu þessu“, sagði Bertie gramur, og jós á hann vatninu um leið og hann stakk sér út í. Það var einum eða tveimur dögum eftir þetta samtal í sundlauginni, að bréf til Bertie Heasant kom í póstkassann og þaðan í hendurnar á móður hans. Frú Heasant var ein af þessum hégómafullu mannverum, sem sífellt hafa áhuga fyrir annarra manna málefnum. Og því heim- flllegri, sem þau eru, þeim mun ákafari áhuga vekja þau hjá þeim. Hún myndi í öllu falli hafa opnað þetta bréf, en þar sem það var nú merkt „privat“ og auk þess lagði af því fínan og angandi ilm, þá varð það til þess að hún opnaði það meft miklum flýti. Og árangurinn af ákafa hennar var vonum framar: „Bertie, elskan mín“, byrjaði það. „Eg dái þig ef þú hefir kjark til að gera það; það mun nú taka í taugarn-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.