Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 12

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 12
50 N. Kv. Björn R. Árnason: Björn Jónsson, bóndi í Syðra-Garðshorni Björn Jónsson bóndi frá Syðra-Garðs- horni er fæddur á Botni í Þorgeirsfirði þann 20. nóvember 1831. Voru foreldrar hans Jón Jónsson og María Sæmundédóttir bú- andi hjón þar. Jón á Botni er talinn fæddur 19. ágúst 1794 og dáinn 7. janúar 1837 (drukknaði). Er svo að sjá, að brúðkaup þeirra Botns- hjóna, Jóns og Maríu, væri 22. maí 1828. Sambúð þeirra befur því eklci orðið löng. Það er í frásögur fært, að Jón á Botni væri harðfengur starfsmaður, sæmdarmaður í hvívetna og vinsæll. Hefur og María kona hans Sæmundsdóttir verið sögð hetja rnikil að gerð og hrá eigi skapi, þó að mannraun- ir og lífsharmur yrði hlutskipti hennar löng- um. Svo sagði Björn í Syðra-Garðshorni þeim, er þetta ritar, að móðir sín og fleira heim- ilisfólk á Botni sæi af bæjarhlaðinu slys- farir Jóns, þar sem hann var staddur á báti skammt frá landi við annan mann. Og fór- ust þar báðir. María gekk í bæinn þögul, en þó eigi hugstola eða svo harmi lostin, að hún ekki gætti sjálfsstjórnar. Vann að mat- seld og búverkum og fór með heimilisstjórn jafnt sem áður, og að kveldi þess sama dags rækti hún heimilisguðsþjónustu og las og söng sjálf, án þess að brysti rödd hennar. Má um það segja, að slíkri stillingu og þreki fleytist yfir flest, og eru það meira en bjarg- álnir og vesalar birgðir andlegra hæfileika. Þá er það enn um Maríu sagt, að hún væri kona verkhög, veitul og góðgjörn og um flest merk, og fullvíst er, að ekki varð henni laust í hendi sæmd og gott mannorð til ævi- loka. Það held ég víst, að María Sæmunds- dóttir héldi við hú um nokkur ár eftir and- lát manns síns, hafði hún og fyrir nokkrum börnum að sjá. Brestur mig nægilega þekk- ingu og sannsögulegt öryggi til þess að greina það riánar. En það sagði mér Björn sjálfur, að tíu ára gamall færi hann frá móð- ur sinni og þá að Hvanndölum, sem þá var byggt býli á milli Olafsfjarðar og Héðins- fjarðar. A Hvanndölum bjuggu þá Sigurð- ur sagður Sigurðsson og Björg, ógiftar per- sónur. Segja þeir, sem hezt vita, að Björg r r væri móðir Arna Arnasonar bónda og lækn- is á Hamri í Svarfaðardal og talin góð kona. Það sagði Björn mér sjálfur, að á Hvann- dölum liði sér vel hjá þeim Sigurði og Björgu, og reyndust honum sem foreldrar. Engin var þá kýr á Hvanndölum, en 30 ær á búi og einn hestur. Um vor og hásumar reru þeir til fiskjar á hyttu Sigurður hóndi og sveinninn Björn og öfluðu oft vel, enda oft stutt að sækja, þegar fiskur er genginn á innmið. Þegar hallar sumri og haustar að, verður brimuð strönd og því hættulegar sjófarir litlu fari og lítt mönnuðu. Sagði Björn mér, að oft-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.