Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 45
N. Kv. DÁLURINN OG ÞORPIÐ 83 orðinn, grimmur og vondur. Látum þá bara lifa í þeirri trú. Haustið kom. Fénu var smalað af fjöllum og gangna-' mennirnir gistu í Reykjaseli, átu þar nesti sitt og supu á ferðapelanum. Finna liitaði morgunkaffi. Leitarmenn voru kátir, sögðu sögur og kváðu. Þeir gáfu drengnum líka að súpa á ferðapelanum. Það var beiskt. Hann gretti sig í framan, en eftir á hitnaði honum allt niður í tær. Kaffið, sem Finna gaf, var svart og þykkt. Það- litaði innan hollana, reglulegt spádómskaffi. Drengurinn lærði margar vísur þessa daga. Það voru mergjaðar vísur. Daginn eftir kvað hann: Það er fúlt í flöskunni fordérfaður andskoti. Hentu henni oní helvíti, hana! Taktu við henni. Hann kvað vísuna tvisvar. Svo var hljótt um stund, en þá kom Finna í dyrnar og hvessti á hann augun. Hún var hlaut um hendurnar og þurrkaði sér á strigasvunt- unni. Það er fallegt að heyra til þín núna, sagði hún. Hann byrjaði að kveða vísuna í þriðja sinn. Það var uppreist. Hún elti hann um haðstofuna og náði honum loks út í horni. Þar sló hún hann þéttingsfast á vangann. Eg skal drepa þig, sagði drengurinn. Hún sló hann aftur. Þú getur farið með hlót og guðlast einhvers staðar annars stað- ar en í mínum húsum, sagði hún. Ég skal alltaf hafa hana yfir og læra all- ar Ijótustu vísur í heimi og hafa yfir. Ég skal meira að segja kenna krökkunum þær, sagði hann. Hún sló liann enn. Eg skal. Hann slapp að þessu sinni, þaut fram göngin og út, berhöfðaður með kreppta hnefa og rauðan vanga eftir höggin. Hún sló hann oftast í höfuðið. Stundum hafði hann suðu fyrir eyrunum, lengi á eftir. Hann barðist við ekkann, og af gömlum vana hljóp hann til fjalls. Eullorðnir menn voru ekki harðir fyrir að kveða ljótar vísur. Dag- inn eftir kenndi hann Siggu þessa vísu og aðra til, engu fallegri. Sigga var ónæm. Hann margtuggði hverja hendingu og var þó ekki viss um að hún færi rétt með vís- Una. Hún spurði: Er þetta vers? Nei, þetta er vísa. Heyrirðu ekki hvernig hún stendur í hljóðstöfum, asninn þinn. Henni var ómögulegt að muna vísuna rétta. — Ég er víst áreiðanlega húinn að segja þér hana ellefu sinnum, sagði hann ergilegur og svo sló hann hana laust með flötum lófa. Hún fór óðara að skæla. Það heyrðist umgangur frammi í bænum. Ég skil ekki að þú þurfir að öskra svona af þessu, eins og þú hafir verið drepin, sagði hann. Það má aldrei koma neitt við þig. Hann forðaði sér áður en stjúpan kom og slapp,að þessu sinni við högg. Seinna kenndi hann Valda báðar vísurnar, og fékk hann til að lofa því að kveða þær síðar — þegar hún heyrir til, sagði hann. En þú rennur alltaf, þegar á hólminn er komið, þú ert svoddan ræfill, bætti hann við. Haustið leið. Það var kalt og frostið leit- aði inn í bæinn. Lauf hjarkarinnar urðu hleik og heiðlóurnar hurfu á braut, hinn angurværi söngur þeirra var hljóðnaður. Það kom ilmur af heitu slátri í hæinn með frostinu. Börnin hleyttu hrauðmolann sinn í volgu sláturfloti. Það voru hátíðastundir. Ærnar komu í bæjarrekstri langt að. Kola
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.