Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 42
80 DALURINN OG ÞORPIÐ N.Kv. kvað hana mundu ráða þessu. Hún þagnaði við og rétti honum nýkomið blað. Það var Tíminn. Bóndi reif það upp, leit lauslega yfir fyrirsagnirnar, og sneri því næst máli sínu til kaupamannsins og sagði: Ekki veit ég nú hvar við íslendingar vær- um staddir, ef við ættum ekki viturlegan milliflokk, eins og Framsóknarflokkinn til að miðla málum milli öfganna tveggja, aft- urhalds og sósíalisma. Það væri nú víst bága útkoman hér á landi þá. Jæja, Steini hafði fátt gott um Framsókn- arflokkinn heyrt til þessa. Gömlu húsbænd- urnir á Mörfelli höfðu jafnan ráðstafað at- kvæðum hjúa sinna eftir því, sem þeir töldu affarabezt fyrir sjálfstæði þjóðarinnar. Það er orðið nokkuð mikið um þetta há- launafólk hér á landi, sagði Arni. Þeim verður ekki mikið fyrir því að byggja sér fínar villur þarna í Reykjavík, þó við get- um varla hróflað upp hesthúskofa, nema fara á sveitina fyrir bragðið. Eg hefi nú alltaf heyrt, að það sé enginn auður til á Islandi, sagði Steini með hægð. Jú, hér eru margir ríkir, ja, kannske ekki á borð við þá í útlandinu, ef maður miðar við það, sagði Árni. Það er ekkert að marka hvað íhaldsblöðin segja um þetta, þau verja launastéttirnar allt hvað af tekur. Þú ættir að lesa Tímann. Eg les nú ekki mikið, mér finnst ég aldrei hafa tíma til þess, sagði Steini. Eg lána þér blöðin í vetur, þá er helzt tími, sagði Árni. Steini svaraði ekki. Húsfreyja skar niður slátur á búrbekkn- um til hliðar. Hún sagði: Og það er nú ekki allt merkilegt, sem er í þessum blöðum. Ekki get ég hælt því. Já, það er langur ómagahálsinn á sum- um. Það hafa ekki allir lag á því að verða ríkir, sagði Steini. O-nei. Það gildir einu hvað sumir vinna, þeir hafa ekki nema til hnífs og skeiðar. Það eru ekki allir búskaparmenn á jörðu hér, sagði bóndi. ■--------Finnu voru bornar fréttirnar, að stjúpsyni bennar liði vel, af manni, sem átti leið fram í dal. Vilcan leið alltof fljótt, fannst drengnum. Hann borðaði glóðarbak- að brauð við hlóðirnar hjá gömlu konunni. Hún strauk honum um vangann og sagði, að hann hefði fallegan hnakka og gáfuleg augu. Hann leit upp, heitur og framandi. Enginn hafði sagt þetta um hann fyrr. Var óhætt að trúa þessu? Um kvöldið leit hann í spegil, sperrti brýnnar og aðgætti augu sín í skugg- anum, í birtunni. Voru þau kannske ekki falleg? Um nóttina dreymdi hann fallegan draum. Hann þóttist standa í grænu túni, einn. Það var yfir miðnætti og bjart. Allt í einu stóð gamla konan við hlið honum, en það var ekki lengur gömul kona, heldur ung og augu hennar voru fegurst alls, er hann hafði séð til þessa. Hún var í lifrauðri treyju, eins og álfkonan, leit við honum og mælti: Þú munt verða mikill maður, og mestur gæfumaður á íslandi, ef þú ferð að mínum ráðum. Farnist þér vel. Á því augnabliki skildi hann, að það var ekki neitt undarlegt við það, þó hún kynni vísur. Hún var konungsdóttir í álögum. Það leið að helgi. Drengurinn hlakkaði ekki til hennar, hann lcunni vel við sig á Á, og brauðið, sem gamla konan bakaði á glóðinni, var næstum því eins gott og vísur hennar, skyrið sem hún hrærði í skálina hans, sætt og ljúffengt. Hún vermdi hendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.