Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 32

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 32
70 VÍSNAÞÁTTUR N.Kv. 72. Til konu minnar. Þér gefin er ríflega góðvildin hlý og göfginnar útvaldrar njóta, og öðrum þú mælir í málinu því, er mælingu vildir úr hljóta. 73. Afmælisósk. Þér sígildu óskina sendi eg þá, æ sigur þér auðnist að vinna, og hittirðu ætíð J)á hamingju á Jiína hilluna réttu að finna. 74. Morgunn í Reykjavík. Ilér við þjóðar höfuðból hrynur glóð um sæinn, er að bjóða ylrík sól öllu góðan daginn. 75. Leiðindi. Vefur hugann vetrarhjarn, vor er hvergi að finna, ég er ekkert óskabarn æskudrauma minna. 76. Vor. Himneskt vor að hjarta snýr, huggar allt sem grætur, duftsins barni blærinn hlýr býður góðar nætur. 77. Haust. Norðri frá með nöpur hót næða háir vindar, himni bláum horfa mót hélugráir tindar. 78. Þrastalundur. Æskan hefur alla stund elskað skógarvegi, því er hjart um Þrastalund, þó að halli degi. r 79. A öræfum. Við mér blasir víð og hrein veröld sagna og minja, þar sem fellur fast við stein fáguð jökulbrynja. 80. Óhappadagur. Elskað, hatað, öllu liætt, enga ratað vegi, ýmsu glatað, ekkert grætt á þeim satans degi. 81. Viðskál. Enn er bjart um unga sál, auðgast hjartað snauða, fagurt skartar skáldsins mál skírt í „Svarta-dauða“. 82. Afmæliskveðja. Meðan vakir vor í sál, vígir stuðlaföllin, dagsins harni dýra skál drekk ég yfir fjöllin. 83. Leirskáldið. Þig mun ætíð þrjóta ljóð, þú sem fæddist kálfur, láttu í friði land og þjóð, leirinn éttu sjálfur. 84. Á veiðum. Gein við agni silungssál, söng í stöng og línu, gullinn skrokkur glöpin hál galt með lífi sínu. 85. Staka. Oft er snauð af andans glóð útlitsfögur stofa, t meðan fæðist listrænt Ijóð lágum moldarkofa. 86. Fyrsti sumardagur. Felld við hlæinn lofnarljóð landnámsbæinn gista, syngur Bragi sólaróð sumardaginn fyrsta. 87. Við Staupastein. Meðan gleðin heið og hrein hljómar endurborin, rísa liátt við Staupastein stuðlamál á vorin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.