Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 38

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Blaðsíða 38
76 DALURINN OG ÞORPIÐ N.Kv. það hafi sál, sagði drengurinn. Þið skuluð passa ykkur með að stíga aldrei ofan á það, því að það hefnir sín og sendir pöddur inn í fæturna á ykkur. Eg stíg ekki ofan á það, af því að það talar til mín, áður en ég er k.ominn alveg að því. Ef þið hlustið vel, heyrið þið suða í mýrinni. Það er jörðin að tala við grasið. Þau settust á túngarðinn. Hann endur- tók orð sín um gljúfrabúann. Lengst í burtu inn á milli fjallanna liggur djúpur dalur, sagði hann. Þar er jörðin græn árið um kring. Þar er líka annar gljúfrabúi og margt fleira fólk. Allt eru þetta vinir mínir. Ég liitti þá í draumi, og þegar ég er orðinn stór, fer ég til þeirra og læri ýmislegt, sem enginn hefur áður lært. Mér væri meira að segja óhætt að kasta mér í fossinn, því að gljúfrabuinn myndi áreiðanlega bjarga mér. Þannig var stóri bróðir. Það var víst hollara að móðga ekki vin- ina hans, hina voldugu, sem skóku fjöllin. Þau trúðu, voru auðmjúk, létu hann ráða. Hann píndi þau á afviknum stöðum. Þegar hann var hýddur, náði hann sér niðri á þeim. Hann var lcominn í hvarf, sá ekki bæinn lengur. Hami lagði hendur á bak sér og horfði ofan í strauminn, bláan bergvatns- straum. Hvað skyldi annars vera langt út að Á? — Hundrað mílur? Og þarna kemur livolpurinn hlaupandi á eftir honum. Dreng- urinn stanzaði og klappaði hvolpinum. •— Ertu kominn, auminginn minn. Var galdra- nornin farin að hrjóta í helli sínum? Þeim sóttist ferðin seint. Drengurinn var að einlægu dundi. Hann settist bak við stór- ar. stein og hlustaði, lagðist endilangur í grasið og horfði upp í loftið. Það söng lóa í holti og stelkur í mýri, og enginn veitti honum eftirför. Vafalaust hélt Finna, að hann hefði stokkið upp í fjall að tína ber. Skýin voru blá. Þangað horfði drengurinn. Honum virtust skýin fjarlæg og óskiljanleg, eins og dauði móður hans og hennar ódauð- lega sál. Skýin eru víst afar langt í burtu? Nú veit hann, að himinninn er ekki fastur við fjöllin, heldur er hægt að ganga upp á tindinn. Og stjörnurnar eru hnettir, sem svífa um geiminn, aldeilis ekki bjartari en jörðin, þó þeir sýnist þetta glitrandi. Það •væri ekki úr vegi að vita eitthvað nánar um þetta. Hann gekk sundur skóna, síðan kom gat á annan sokkinn. Það rökkvaði, og fjöllin virtust iærast nær. Það féllu skuggar á ána eins og af stórum vængjum. Síðan kom myrkrið, Það seytlaði lækur fram hjá yfir smásteina, lítill vingjarnlegur lækur. — Drengurinn og félagi hans drukku báðir úr læknum. Og hérna máttu þeir til með að hvíla sig ofurlítið, áður en lengra væri lialdið. Hann hugsaði heim. Nú leið norninni kannske ekki sem bezt, þegar hann var horf- inn og sást ekki meir. Skyldi hún sofa í nótt? Hún ætti að sofa, helzt að eilífu. Hann man, að það er sprunga í lófanum á henni, stór ljót sprunga, og það vætlar úr henni svart blóð. Hrífuskaftið leikur um þessa sprungu, og sápan fer í hana, þegar nornin þvær af sér mjaltirnar, en aldrei að eilífu skal drengurinn finna til með óvinum sínum. Ekki þó þeir leggist í rúmið og deyi. Hvað geta menn annars lifað lengi með svart blóð, og er blóðið annars svartara í vondu fólki en góðu? Er það eitrað? Hans eigið blóð er Ijósrautt eins og blómið. Getur það skeð, að hann hafi villzt af Ifcið? Skelfing er langt út að Á. Drengurinn stóð upp og hélt enn áfram yfir mó og síðan eyri, alltaf með ánni. Það var áreiðanlega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.