Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 25

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Side 25
N. Kv. SKÖPUNARSAGA SLÉTTUFYLKJANNA í CANADA 63 Pálmatré komu nú aftur í Saskatchewan. Enn voru skilyrði til kolamyndunar og þau, sem nú eru tekin úr jörðu, tilheyra þessu tímabili. Neðanjarðarumbrot hófust að nýju og annar ættliður Klettafjallanna byrjaði að rísa, hægt og gætilega, ung, há og tindótt, söniu tignarlegu, veðurbitnu og vatnsslíp- uðu fjöllin, er við sjáum í dag. Á sama tíma og af sömu rökum mynduðust Cypress Hills, Sweet Grass Mountains og Bearpaw Hills. Veðurfar landsins var þurrt og svalt, hita- beltisgróðurinn dó út, en ný gróðurtegund kom í þess stað og hæfði betur hinum þurra jarðvegi -— grasið. Þróun og' útbreiðsla þessarar nýju teg- undar fyrir 15 milljónum ára, hefir verið einn af merkustu athurðum sögunnar. Grasfjölskyldan er foreldri allra kornteg- unda til uppeldis manna og dýra. Það út- breiddist til ýmissa landa heimsins, þar sem gróðurskilyrði voru hagstæð. Eitt hið fyrsta grashérað var í skjóli Klettafjallanna á slétt- unum miklu. Landslag á þessum slóðum hefir verið í aðaldráttum mjög líkt því sem nú er. Dýr, svo sem villtir hestar, úlfaldar, nashyrning- ar og fílar, sem við teljum tilheyra Asíu og Afríku, áttu uppruna sinn í Ameríku. Athyglisverðasta og merkilegasta dýrið var hesturinn. Hundruð af beinagrindum sýna, hvernig hann myndbreyttist srnárn saman úr lítilli skepnu með fjórum tám í hið glæsilega og stóra dýr, sem við nú nefn- um hest. Hin steinrunnu form sýna ljóslega, hvernig hann hefir breytt sköpulagi, eftir því sem skilyrði náttúrunnar kröfðust, sér- staklega frá hinum votu og vörmu flóalönd- um, til grassléttanna, sem hann er nú sam- gróinn. Saga hestsins er svo samfelld heild, að þar vantar engan „hlekk“. Mest af ferli hans fer frarn í Alberta og Saskatchewan. Mikið af leifum hans hefir fundizt í klett- um í Cypress Hills. Fyrsti ættfaðir hestsins var Eohippus og líkari hundi en hesti; hann rásaði um slétt- urnar 50 milljón árum eftir endalok dino- saursins. I jarðlögum 20 milljón árum síð- ar finnast engar leifar af þessum hesti, en annar kominn í staðinn og nefndur á máli vísindamanna Mesohippus. Hann var á stærð við sauðkind og svipaður hesti í sköpulagi, hann hafði fjórar tær á hverjum fæti og miðtáin miklu stærst með harðri skel. Þegar tímar liðu, hvarf hann af sjónar- sviðinu og í hans stað kom Protohippus. Hann var á stærð við lítinn hest. Jarðvegur- inn var farinn að þéttast, svo hesturinn þurfti ekki eins breiðan fót og fyrr. Það, sem hesturinn þarfnaðist rnest var flýtir til þess að geta forðast óvini sem gnægð var af, en fáir felustaðir til bjargar; til þess að bæta úr þessu hafði framtáin vaxið fram í hvassan hóf, en hinar aðrar tær horfið, að- eins óljósar leifar undir húðinni merkjan- legar. Protohippus hvarf frá skóglandi og lifði á grasi, er gjörði tennur hans breiðar og sterklegar og uxu stöðugt og mátulega til að jafnast á við slit. Nútímahesturinn Equus, hóf göngu sína íyrir 5 milljónum ára, en á síðustu einni milljón ára, hafa í það minnsta tíu mis- munandi tegundir þeirra átt heirna á vest- rænni jörð. Einhvern tíma á þessu tímabili, lyftist landið lítið eitt, en nóg til þess að landbrú myndaðist milli Alaska og Síberíu; fór þá nokkuð af hestastofni Canada yfirum. En af ókunnri ástæðu féllu allir hestar Ame- ríku á þessu tímabili; líklegast þykir, að munn- eða hófsjúkdómar hafi valdið. Til

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.