Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 26

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 26
64 SKÖPUNARSAGA SLÉTTUFYLKJANNA í CANADA N. Kv. blessunar fyrir manninn varð hesturinn rót- gróinn í Asíu og þar síðar taminn. Snemma á tíma fluttu landkönnuðir frá Spáni, hestinn aftur til Ameríku, hans forna heimkynnis og feðralands. Ferill fleiri dýra er á sömu lund; saga þeirra hefst í Vesturheimi og eru talin deyja þar út, en afkomendur þeirra koma fram í annarri heimsálfu, fyrir orsakir, sem ekki eru kunnar. Forfaðir úlfaldans — sem leifar hafa fundizt af í Vesturheimi — var einn af hin- um algengustu dýrum á sléttunum, fyrir 10 milljónum ára; einnig hann komst til Asíu; eina leiðin var yfir landbrúna, sem áður var getið um. I heimalandi sínu dó hann út. Úlfaldahöfuðskel hefir fundizt í Utah, sem er að áliti sérfræðinga 2500 ára gömul. Nashyrningar eru einnig upprunnir á sléttum Ameríku, en þrátt fyrir það, að leif- ar þeirra hafa fundizt í jarðlögum suðaust- ur frá Swift Current, er álitið að þeir hafi átt heima sunnar og aldrei verið algengir í Canada. Tvær frumstæðar fílategundir — Masta- don og Mammoth — áttu heima í Canada, en fluttust inn frá Asíu. Mammoth var tröll- vaxið dýr: 10 feta hár'. Hann tróð slétturn- ar miklu fyrir 25000 árum og hvarf þá af sjónarsviðinu. Vísundurinn fluttist irui frá Asíu fyrir hér um bil 50000 árum; en um eitt skeið var ein tegund bans, sem hafði fjögurra feta löng horn. Af öllum þessum áðurtöldu dýrum, var það vísundurinn einn, sem var uppi, þegar hvíti maðurinn sá Vesturheim. Mjög nýlega — eftir jarðfræðinga tíma- tali — reið yfir alda mikilla breytinga og eyðileggingar. Harður reynslutími fyrir allt sem lífsanda dró. Þeir atburðir hófust fyrir einni milljón ára. Norðanvindarnir í Can- ada urðu smám saman kaldari og sárari; vestur af Hudson Bay féll meiri snjór á vetrum en sumurin gátu þítt. Snjóar ótaldra vetra söfnuðust saman og mynduðu órjúf- andi jökulhjúp. Vegna hinnar miklu þyngd- ar á miðbiki jökulsins, lét hann undan og renduniar pressuðust út til allra hliða. Þessi inikli jökulveggur skreið hægt og gætilega yfir allt sem fyrir var, eins og hræðilegur skriðdreki og þyrmdi engu. Brún hans gnæfði mílu yfir Canadasléttuna, þar sem bann reif með sér skóga, jarðveg allan og kletta. Á 50000 árum fór hann yfir mikið af Canada og suður um landamæri þess og Bandaríkjanna. Slétturnar voru horfnar, huldar mílu þykkum jökulís. Eftir það árabil sem fyrr var nefnt, (50000 ár), mildaðist veðurfar og jökull- inn fór smám saman að hopa á hæli, þar til hann að lokum hvarf með öllu þar sem upp- tök hans voru. Fjórum sinnum á síðustu milljón ára, hefir jökull skriðið inn yfir landið frá norðri og eytt öllu sem lífsanda dró og jafn- oft hefir liann hörfað til baka og líf hafizt á nýjan leik. Fjórði og síðasti jökullinn gekk inn yfir Saskatchewan að norðaustan. Á þeim tíma var bergundirstaða Canada — sem liggur undir þriðja hluta sléttufylkjanna — þak- in leðju svo sléttri, að þar gátu engin stöðu- vötn myndast. Þegar jökullinn þokaðist hægt og seint suður, með stórum og smáum björg- um frosnum í undirlagi hans, vann hann tins og risavaxinn hefill, sem jafnaði botn- inn, nema þar sem stærstu björgin ristu

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.