Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 30

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1959, Page 30
68 VÍSNAÞÁTTUR 40. Hlakkar og flýgur heimskan kunn, hakkar og sýgur blóðgan grunn, flakkar og lýgur fólks í munn frakkar en smýgur vatn í unn. Sól þá gyllir grund og mar, gil og syllur ljóma; ask þú fyllir unaðar angan villiblóma. 41. Kærleikssnekkjan komin er með Krist í stafni — og dægurflugan dinglar hér í Drottins nafni. 49. Fjalls á veginn birtu ber, brekku um sveigir lága; gils í teigi geymd er þér gleymmér-eyjan bláa. 42. Illátur minn heyrðist ekki — hláturinn var sem grátur. ■— Grátur minn heyrðist ekki ■— gráturinn var sem hlátur. -— 50. Ljóð þitt geymir lindin hlá, lækur, streymin áin; þögul lireiminn hlusta á haga dreymin stráin. 43. Hlaupagikkurinn. 51. Hann stekkur og æðir með rógburð og raup og rífur svo blæðir — ef getur; — en ef að hann mæðir við Maraþonhlaup, mætti þá ræða’ um hann betur. Dal að sjá um draumblítt vor dýpsta þrá er öllum; hvar þín lágu léttust spor um lyng, und bláum fjöllum. Það er fleira matur en mör — og mér geðjast ekki flesk af svíni. — Blessaður liættu að bragða smjör. en borðaðu íslenzkt margaríni. 52. Þó tímans móða tyrfi bæ, týnist hlóð og pallur; bernskuslóðum yljar æ einhver gróðurstallur. 45. Sumargestir í sveit. Grænka reitir, glitra fjöll, grósku eg leit í hverju spori; fagnar sveitin ykkur öll æskuleit með sól og vori. 53. Þar við klára lifsins lind lékst þú frár um hjalla; við horfinna ára æskumynd angurstárin falla. 46. Fugl á kvisti fagurt lag felldi í listaróminn; sól þá fyrsta sumardag sviphýr kyssti blómin. 54. Vorvísur. Gull í blænum gafst þú mér: grósku væna daga. Eg í bænum þakka þér þessa grænu haga. Um blómagrund og grösug ver gróðurundin streymir; hér þinn bundinn hugur er, horfnar stundir dreymir. 55. Lindar kvakar lækur hver, ljóðar nakin bára. Nú skal vaka og viðra af sér vetrar blakið sára. N.Kv.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.