Tjaldbúðin - 01.01.1898, Page 14

Tjaldbúðin - 01.01.1898, Page 14
—12— ursson til þess að mynda nýjan íslenzkan söfnuð í Suður-Winnipeg, þá iýsir fundurinn því viir með ánægju, að hann í nafni safnaðarins sje samþykkur þessu. Ennfremur felur fundurinn sjera Hafsteini Pjeturssyni að taka að sjer þetta mál.” Við um- ræðurnar um þetta mál kom það greinilega x ljós, að norðursöfnuðurinn vildi ekkert hafa að gjöra við þessa safnaðarmyndun. Leiðandi menn safnað- arins vildu að eins “lána” mig “til að myndasöfn- uð.” Og þeir töluðu mjög eindregið á móti orðunum: “Ennfremur felur fundurinn sjera Haf- steini Pjeturssyni að taka að sjer þetta mál.” Þeir vildu orða það þannig : Ennfremur 1 e y f i r fund- urinn sjera Hafsteini Pjeturssyni að taka að sjer þetta mál. Það var gjört til þess, að norðursöfnuð- urinn hefði engan vanda af þessari safnaðarmynd- un. Jeg sagðist auðvitað sem prestur norðursafn- að'xrins eigi geta tekið að mjer málið, ef söfnuður- inn vildi eigi “fela” mjer það á hendur. Og vegna þess varð að samþykkja fundarályktunina, eins og hún er orðuð í “Lögbergi” 11. ágíist 181)4. Samkvæmt fundarályktun þessari kallaði jeg til almenns fundar með fundarboði í “Lögbergi” 29. ág. 1894. Fundur þessi var svo haldinn í sam- komusal Guðm. Johnsons (North-West Hall) laugardaginn 1. sept. 1894. Þeir menn, sem mest höfðu gengizt f'yrir safnaðarmynduninni, sögðu mjer rjett fyrir fundinn, að eigi væri til neins fyrir mig að reyna að mynda söfnuð, er ætti að standa í íslenzka kirkjufjelaginu. Það væri eigi

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.