Tjaldbúðin - 01.01.1898, Side 18

Tjaldbúðin - 01.01.1898, Side 18
—16— Hann fer fram á, að starfstími minn lijá honum sje reiknaður frá 1. sept. 1894. Þessi beiðni hefur og verið lögð f^^rir hinn ‘Tyrsta lút.erska söfnuðí Winnipeg” op; hefur söfnuður sá í kvöld samþykkt fyrir sitt leyti, að þessi beiðni Tjaldbúðarsafnaðar sje veitt. Jeg vil þess vegna eigi lengur draga að gefa mitt svar : Það er álit mitt, að báðum söfnuðunum hafi farizt vel og viturlega í máli þessu. Og það er vissulega eng- inn efi á því, að myndun Tjaldbúðarsafnaðar verður kristindórasmálum Islendinga í Winnipeg til blessunar. Jeg tek þess vegna köllun Tjaldbúðarsafnaðar sam- kvæmt þessu leyfi hins “Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg.’’ Samkvæmt leyfi hins ‘ Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg” segi jeg honum upp prestsþjónustu minni frá 1. sept. 1894, án þess að gefa hinn lögboðna fyrir- vara. Jeg hef veriðí þjónustu hins “Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg” í 14 mánuði, frá 1. júlí 1893 til 1. sept. 1894. Allmikinn hluta af þeim tíma hef jeg haft einn á hendi alla prestsþjónustu fyrir söfnuðinn. Laun mín fyrir þessa 14 rnánuði eru 8700. Af þeim hefursöfnuð- urinn borgað mjer á 4. hundrað dollara. Jeg lief orðið að taka lán og safna nokkrum skuldum, meðan jeg hef verið í þjónustu safnaðarins. Þess vegna neyðist jeg til að biðja söfnuðinn að borga mjer það, sem eptir stendur af launum mínum.* Jeg er fulltrúum hins “Fyrsta lúterska safnaðar { W’innipeg” og söfnuðinum sjálfum af öllu hjarta þakk- látur fyrir ástúðlega og ágæta samvinnu bæði utan kirkju og innan. Jeg kveð svo hinn “Fyrsta lúterska söfnuð í Winni- *) Söfnuðurinn borgaði mjer alla þessa skuld bæði fijótt og vel, eins og honum fórst ávallt mjög vel við ig, meðan jeg var í þjónustu hans.

x

Tjaldbúðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.