Tjaldbúðin - 01.01.1898, Page 21
111.
Tjaldbúðarsöfnuður og kirkjufjelagið.
3. jan, 1895 hjelt Tjaldbúðarsöínuður fyrsta
ársfund sinn. Fulltröar voru kosnir þessir: S.
Þórðarson, forseti, J. Pálsson, skrifari, Ó. Ólafsson,
fjehirðir, Bergþór Kjartansson og Loptur Jörunds-
son ; djáknar: Mrs. | Sigfússon og Mrs. S. Her-
mannsson.
Eptir að Tjaldböðin var fullgjörð og vígð
(l(í. des. 1894), fóru fyrst að koma fram raddir frá
kirkjufjelagsmönnum um það, að Tjaldbúðarsöfn-
nður ætti að ganga í kirkjufjelagið ; því nú var
auðsjeð, að söfnuðurinn gat staðizt og átti framtíð
fyrir höndum.
Seinast í janúarmánuði 1895 hjelt skólanefnd
kirkjufjelagsins fund með sjer í Winnipeg. Jég
var á þeim fundi. Skömmu eptir þann fund
kornu þeir sjera Jón Bjarnason, forseti kirkjufje-
lagsins og sjera Friðrik J. Bergmann, varaforseti
þess, heim til mín. Þeir tóku uudir eins að tala
um það, að Tjaldbúðarsöfnuður yrði að ganga í
kirkjufjelagið, hvort sem honum væri það Ijúft eða
leitt. Jeg ætti að gjöra söfnuðinum tvo kosti:
Annaðhvort yrði söfnuðurinn að ganga í kirkjufje-
lagið, eða jeg færi tafarjaust frá honum. Jeg
sagði þeim, að Tjaldbúðarsöfnuður mundi undir
eins líða undir lok, ef jeg fteri á þann hátt frá hon-