Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 22

Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 22
■20- um, og í kirkjufjelagið mundi hann eigi ganga að svo stöddu. Um þetta mlíl töluðum vjer dálitla stund. Jeg vildi eigi yfirgefa Tjaldbfiðarsöfnuð, en jeg lofaði þeim að leggja þetta “inngöngumál” fyrir söfnuðinn. Undir eins eptir samtal þetta fór jeg á fund eins framkvæmdarmesta manns Tjaldbúðarsafnaðar og sagði honum alla málavexti. Var svo kallað til fundar í Tjaldbúðinni til að ræða um “inngöngumálið” 7. febr. 1895. Forseta kirkjufelagsins og norðursöfnuðinum var “boðið að vera viðstöddum á fundi þessum”. S. Þórðar- son, forseti Tjaldbúðarsafnaðar, stýrði fundinum. Hann gjörði það snildarlega, enda er hann ein- hver bezti fundarstjóri af íslenzkum leikmönnum hjer vestan hafs. Fundur þessi fór í alla staði á- gætlega fram. Jeg lagði „inngöngumálið” fyrir fundinn. Síðan las jeg upp grundvallarlög lcirkju- fjelagsins og ráðlagði söfnuðinum að ganga í fje- lagið. Forseta kirkjufjelagsins, fulltrúum norður- safnaðarins og W. H. Paulson var gefið málfrelsi 4 fundinum. Svo var borin upp tillaga um að ganga í kirkjufjelagið. Um þessa tillögu urðu nokkrar umræður. Forseti kirkjufjelagsins og W. H. Paulson hjeldu langar ræður með henni. Til- lagan var svo felld með öllum atkvæðum gegn 7. 1. marz 1895 hjelt norðursöfnuðurinn fund til þess meðal annars að minnast á “þá ákvörðun, sera Tjaldbúðarsöfnuður gjörði um að standa í'yrir utan ísl. lút. kirkjufjelagið”. Hvorki presti eða neinum

x

Tjaldbúðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.