Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 34

Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 34
—32— Tjaldbúðin er lög'gild eptir lögum um land- eignir kirkna í Manitoba. J. Pálsson gekkst fyrir því, að fá hana þannig löggilda undir nafni 5 full- trúa, og gildir kosr.ing þeirra æíilangt: J. Páls- son, Ó. Ólafsson, H. Halldórsson, G. Jónsson og K. Jónsson. Allmikil “byggingarskuld” hvilir á Tjaldbúðinni. Hún er veðsett lánsfjelagi einu hjer í bænum fyrir meiri hluta þeirrar skuldar. Ábyrgðarmenn (bondsmen) fyrir því láni eru: H. Halldórsson, J. Sigfússon, Ó. Ólafsson, Jón Jónsson, Jón Árnason, J. Pálsson, H. Pjetursson, S. Þórðarson, S. Pálsson, G. Jónsson, IJ. Hjálmarsson og S. Hermannsson. Tjaldbúðinni hefur verið álasað fvrir það, að það væri ofmargar guðsþjónustugjörðir og sam- komur í lienni. Það væru stundum samkomur I henni á hverjum einasta degi vikunnar. Jeg ætla því að skipta yfirlitinu yfir aðalstarf.-emi safnaðar- ins niður á daga vikunnar, og þess vegna netni jeg kafla þennan : “Ein vika í Tjaldbúðinni.” SUNNUDAGUR. Það eru haldnar tvær messur á hverjum sunnu- degi í Tjaldbúðinni, kl. 11 f. h. og kl. 7 e. h. Auk þess er messað aðra venjulega helgidaga lútersku kirkjunnar. Það eru því um 112 messur í Tjald- búðinni á ári. Þegar hjer eru taldar með bænar- samkomur, sem seinna verða nefndar, þá eru haldn- ar um 104 guðræknis samkomur í Tjaldbúðinni á ári.

x

Tjaldbúðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.