Tjaldbúðin - 01.01.1898, Qupperneq 44
—42—
eflast í „siðlegu, íjelagslegu, menntalegu og
kristilegu tilliti’*. Þetta fjelag verður mjer ávallt
eindregið gleðiefni allt mitt líf. Guð blessi það og
öll þau fjelög, setn af því myndast.
Þessir unglingar hafa hingað til verið forsetar
fjelagsins á víxl: Björn Sigvaldason, Ólafur Ólafs-
son, Árni Jónsson, Páll Pjetursson, Magnús Jönsson,
Skúli IJannesson, Björg Jónsdóttir (Mrs. J. Carson),
Björg M. .Jónsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir og María
Jónsdóttir.
19. júní 1896 dó einn af fyrstu meðlimum
unglingafjelagsins, Kristín Sigmundsdóttir. Fje-
lagið tók mikinn þfttt í sorgarathöfninni við útför
hennar og tók dáiítinn þátt í útfararkostnaðinum.
4. apríl 1898 dó annar meðlimur unglingafjelags-
ins, Magðalena Lambertsen. Unglingafjelagið kost-
aði útf'ör liennar að öllu leyti. Bftðar þessar stúlkur
voru ágætir meðlimir fjelagsins, mjög guðhræddar
og vandaðar til orða og verka.
I marzmftnuði 1896 tók unglingafjjelagið dá-
lítil samskot sín á milli; þau samskot voru send í
sjóð, er The Christian Herald var þá að mynda til
hjálpar Armeníumönnum.
FÖSTUDAGUR.
Safnaðarfundir og skemmtisamkomur Tjald-
búðarinnar, hafa einstaka sinnum verið á föstudög-
um, en venjulegast aðra fyrri daga vikunnar.
Safnaöarfundir byrja með því, að sftlmurinn
422 í sálmabókinni er sunginn. Þeir íara fram á