Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Síða 14
Hœtta! Slysahœtta!
Lífshœtta!
Fjöldi slysa, atvinnuslysa og önnur, þar á meðal lífstjón og örkuml,
orsakast af athyglisskorti, varúðarskorti og hirðuleysi, eigin eða
annara, og af ótryggum vinnutækjum eða hirðulausum útbúnaði
á vinnustöðvunum.
Forðist að vera valdir að slysum, beint eða óbeint, eigin slysum
og annara. Skörp og vaxandi athygli og eftirtekt er eitt af ein-
kennum sannrar og hagnýtrar menntunar.
Verkamenn, sjómenn, verkstjórar og forráðamenn! Verið athugul-
ir og gætnir við vinnu og vinnustjóm, um vinnutæki og útbúnað
á vinnustöðvum! Áföllin og slysin fást aldrei að fullu bætt.
Forðist slysin!
Þau áföll og slys mega teljast sjálfráð, sem orsakast
af aðgæzluskorti, varúðarskorti eða af ótryggum út-
búnaði á vinnustöðvum eða ótryggum vinnutækjum.
Forðist sjálfráðu slysin!