Sjómannadagsblaðið

Árgangur
Tölublað

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Blaðsíða 17

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Blaðsíða 17
SJÖMANNADACSBLAÐIÐ 5 og virðingu fyrir sjómannastéttinni, án þess þó að gera mér grein fyrir því volduga starfi og hlutverki sem hún innir af hendi fyrir hina íslenzku þjóð sem heild. Aðdáun mín er þó ekki neinir draumórar, þótt ég sé hugfanginn af hafinu jafnt sem innfirð- inum, því ég hefi átt því láni að fagna að vera virkur þátttakandi á sjónum — þó skamma stund hafi verið — og á þeim tíma lærði ég meðal margs annars það, að sú aðdáun, sem býr í brjósti hvers útþráarfulls æskumanns, er ekki einhlít og á lítið skylt við þá ómótstæði- legu þrá, sem dregur hug og hjörtu sjómann- anna út á djúpið — og á þeim tíma lærði ég meðal annars það, að með reynslunni skapast sú varanlega og rétta aðdáun og virðing fyrir ekki einasta lífi og heilsu sjómannanna, heldur og einnig allri afkomu þeirra, sem vissulega ætti að vera svo sterk og vakandi í meðvitund þjóðarinnar, að þessi fyrsti sjómannadagur verði í dag og í allri framtíð sannkallaður gleð- innar dagur — og jafnframt sé hann þrunginn skilningi og vinsemd. Velkominn sé þessi hinn fyrsti sjómannadag- ur, því hann á að auka samstarf og skilning á milli hinna mörgu atvinnustétta þjóðarinnar. Okkur matsveinum og veitingaþjónum og öllum þeim, er innan okkar verkahrings starfa, er það fullkomlega ljóst, að við erum aðeins ör- lítið brot af þeirri voldugu stærð, sem í dag fyrst og fremst setur sinn svip á hina ungu höfuðborg lands okkar, en við erum glaðir við að vera þeim samferða — og þótt við séum ef til vill ekki sjómenn í þess orðs beztu merk- ingu, þá vitum við það, að hverri köllun fylg- ir sú ábyrgð sem hverjum manni er sómi að rækja vel. — Sjómannadeginum er ætlað það hlutverk, að vera sameiginlegur frí- og gleðidagur sjómann- anna og viðurkenndur sem slíkur af allri þjóð- inni, og honum er ætlað að vekja skilning þjóð- arinnar á störfum og lífi sjómannanna. Og við vitum það einnig, að Sjómannadegin- um er ætlað annað hlutverk háleitara og við- kvæmara, hann er einnig helgaður minningu þeirra mörgu mannslífa, sem hafið hefir krafizt og fengið. — SammiabiK áþuajn. Á feðranna vísu er nú stigið á stokk og stórvirki er þörf á að vinna. Hún blundar hér orkan í framgjörnum flokk á frumskeiði vordrauma sinna. Frá iðandi straumhvörfum stefnan var sett til starfsins, er beið vor svo lengi. Af framtíðarvonunum leikið er létt á lágróma gullhörpustrengi. Um stefnumál sérhvert til starfs er oss dró með stálvilja sameinumst, bræður, í einróma kröfum um öryggi á sjó býr aflið, er framkvæmdum ræður. Vér látum ei skelfa oss hinn löðrandi sæ — hann lamar ei starfsþrekið djarfa, sem elur og þroskar hin fegurstu fræ á frumgróðri dáðríkra starfa. Sú stétt á sér fegurri framtíðarsvið — það fylgja henni vorboðar hlýir — er djarfhuga starfsþrótt, með dauðann við hlið, til drenglyndrar þjónustu vígir. Já, heill sé þér, heill sé þér hugprúða stétt þá harmleiki þarf ekki að greina, er tryggðu þér arfgengan tilverurétt með trúmennsku dáðríkra sveina. Sé nútíðarbaráttan hugsjónum háð, í hyllingum markið vér sjáum, því framtíðin hvílir á feðranna dáð og flest það, er heitast vér þráum. Fr. Halldórsson. Það er eins og hugur minn nemi staðar, er ég minnist hinnar votu grafar sjómannsins. Sig. Gröndal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað: 1. Tölublað (06.06.1938)
https://timarit.is/issue/312128

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

1. Tölublað (06.06.1938)

Aðgerðir: