Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Page 54

Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Page 54
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ hið stóra spor, að gera samning við Burmeister & Wain um smíði hins fyrsta mótorskips. Samningurinn var undirskrifaður 5. des 1910 og átti skipið að vera fullsmíðað vorið 1912, og svo viss var Andersen þegar orðinn um hag- kvæmni mótorskipanna, að hann lét sér ekki nægja að panta eitt skip, en pantaði þegar ann- að, sem skyldi vera tilbúið litlu seinna. Haustið 1911 hljóp hið fyrsta mótorskip heimsins af stokkunum og hlaut nafnið ,,Selandia“. 1 ársbyrjun 1912 var skipið svo langt á veg komið að það gat byrjað reynsluferðir. Byrj- unarerfiðleikarnir voru furðu litlir, og skipið gekk 11—12 mílur. Um þessar mundir var nokkur ís á Eyrarsundi; var ,,Selandia“ því, meðal annars, látin fara í gegnum hann nokkuð þykkan, og reyndist hún ekki síður til þeirra hluta en önnur vélknúin skip af sömu stærð og lögun. Hinn 15. febrúar 1912 var farin fullnaðar reynsluferð með skipið. Allt gekk þá að óskum og hinn 17. febrúar var það afhent kaupand- anum. Hinn 22. febrúar lagði „Selandia" af stað frá Kaupmannahöfn í sína fyrstu ferð. Eftir að „Selandia". skipið hafði tekið sementsfarm í Nörre-Sundby, var því haldið til London, eingöngu í því skyni að sýna það. I London vakti þetta nýja skip af- ar mikla athygli; fréttin um þetta skip, sem knúið var af þessum undarlegu galdravél- um, flaug nú um allan heim, og hvar sem það kom vakti það hina mestu undrun og aðdáun. „Selandia“ er 370 feta löng milli P.P., 53 feta breið, 30 feta djúp frá efsta þilfari og 495Q rúm- lestir brúttó. Skipið er knúið með tveipnur 8 strokka 4-gengis dieselmótorum, sem framleiða 2500 hestöfl báðir. Mótorar þessir eru með loft-ýrun, og snúningshraði þeirra er 140 á mín. með fullri ferð. Gangskiptingin og ræsunin er framkvæmd með þjapplofti, sem hefir 20 atm. þrýsting, og er hægt að skipta gangi mótoranna frá f. f. til f. b. á 20 sekúndum. Á hverri aðalvél er loftþjappa, sem þjappar loftinu frá 20 atm. upp í 60 atm., sem er þrýst- ingur ýriloftsins. 1 skipinu eru tveir hjálparmótorar, 250 hest- öfl hvor, og snúast 230 sn. á mín. Þeir knýja rafala, sem framleiða rafmagnsstraum til ann- ara hjálparvéla skipsins, og loftþjöppur, sem framleiða þjapploft með 20 atm. þrýstingi til

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.