Sjómannadagsblaðið - 06.06.1938, Qupperneq 54
26
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
hið stóra spor, að gera samning við Burmeister
& Wain um smíði hins fyrsta mótorskips.
Samningurinn var undirskrifaður 5. des 1910
og átti skipið að vera fullsmíðað vorið 1912, og
svo viss var Andersen þegar orðinn um hag-
kvæmni mótorskipanna, að hann lét sér ekki
nægja að panta eitt skip, en pantaði þegar ann-
að, sem skyldi vera tilbúið litlu seinna.
Haustið 1911 hljóp hið fyrsta mótorskip
heimsins af stokkunum og hlaut nafnið
,,Selandia“.
1 ársbyrjun 1912 var skipið svo langt á veg
komið að það gat byrjað reynsluferðir. Byrj-
unarerfiðleikarnir voru furðu litlir, og skipið
gekk 11—12 mílur. Um þessar mundir var
nokkur ís á Eyrarsundi; var ,,Selandia“ því,
meðal annars, látin fara í gegnum hann nokkuð
þykkan, og reyndist hún ekki síður til þeirra
hluta en önnur vélknúin skip af sömu stærð
og lögun.
Hinn 15. febrúar 1912 var farin fullnaðar
reynsluferð með skipið. Allt gekk þá að óskum
og hinn 17. febrúar var það afhent kaupand-
anum.
Hinn 22. febrúar lagði „Selandia" af stað frá
Kaupmannahöfn í sína fyrstu ferð. Eftir að
„Selandia".
skipið hafði tekið sementsfarm í Nörre-Sundby,
var því haldið til London, eingöngu í því skyni
að sýna það. I London vakti þetta nýja skip af-
ar mikla athygli; fréttin um þetta skip, sem
knúið var af þessum undarlegu galdravél-
um, flaug nú um allan heim, og hvar sem
það kom vakti það hina mestu undrun og
aðdáun.
„Selandia“ er 370 feta löng milli P.P., 53 feta
breið, 30 feta djúp frá efsta þilfari og 495Q rúm-
lestir brúttó. Skipið er knúið með tveipnur 8
strokka 4-gengis dieselmótorum, sem framleiða
2500 hestöfl báðir. Mótorar þessir eru með
loft-ýrun, og snúningshraði þeirra er 140 á mín.
með fullri ferð. Gangskiptingin og ræsunin er
framkvæmd með þjapplofti, sem hefir 20 atm.
þrýsting, og er hægt að skipta gangi mótoranna
frá f. f. til f. b. á 20 sekúndum.
Á hverri aðalvél er loftþjappa, sem þjappar
loftinu frá 20 atm. upp í 60 atm., sem er þrýst-
ingur ýriloftsins.
1 skipinu eru tveir hjálparmótorar, 250 hest-
öfl hvor, og snúast 230 sn. á mín. Þeir knýja
rafala, sem framleiða rafmagnsstraum til ann-
ara hjálparvéla skipsins, og loftþjöppur, sem
framleiða þjapploft með 20 atm. þrýstingi til