Blanda - 01.01.1940, Page 21
19
Eg gekk svo upp í i. bekk 28. júní 1880 og gekk
prófiíS vel. Þótti mér nú miklu af lokiö og var von-
góöur um framtíðina. Fór eg þá um sumarið noröur
Kjalveg til kaupavinnu í Noröurlandi ásamt jafn-
aldra mínum úr Biskupstungum (Guöjóni Sveins-
syni frá Kjóastööum). Lögðum viö á fjöllin upp
úr Ytrihrepp snemma í júli, einhesta og tjaldlausir,
báðir bláókunnugir, og vegur yfir Kjölinn þá ó-
varðaður, enda mjög sjaldfarinn á þeim árum. Lent-
um viö í hálfgeröum ógöngum og slörkuöum á vaö-
leysu yfir Blöndu, er var í miklum vexti sakir hita
og þarafleiöandi snjóleysingar á öræfunum, komum
ofan aö Gilhaga í Tungusveit og j^aðan á kláfferju
yfir Jökulsá (Héraðsvötn) gegnt Flatatungu, og
þótti okkur kláfur sá nokkuö agalegt flutningstæki.
Svo fórum viö sem leið liggur til Akureyrar, og það-
an fram í Eyjafjörð, en fengum þar ekki vinnu, og
héldum svo út með Eyjafiröi aö vestanverðu og út
1 Svarfaðardal. Var eg þar mestan hluta sumarsins
hjá Baldvin hreppstjóra Þorvaldssyni á Böggvis-
stöðum og fékk gott kaup, en förunautur minn var
a öðrum bæ í dalnum (Steindyrum), féll þar ekki
og fór vestur í Hjaltadal, og þangaö fór eg nokkru
siðar yfir Heljardalsheiði. Eptir vikuvinnu i Garða-
koti (í Hjaltadal) lögöum viö suöur fjöll frá Mæli-
felli í septembermánuöi, tjaldlausir eins og á norö-
urleiðinni. Hrepptum þá jafnan illt veður, storm
°g kraparegn í fangið, lágum 3 nætur í sæluhúskof-
uin, er allir hripláku, komurn á leiðinni aö tjald-
stað Reynistaöarbræöra, sunnan undir Kjalhrauni,
þar sem þeir uröu úti þá fyrir réttum 100 árum
(1780), og skín á skinin bein fénaðarins út úr hóln-
um við tjaldstaðinn. Svo komumst við yfir Hvítá
viS illan leik suöur að Hólum (Upphólum), efsta
bæ í Biskupstungum, aö kveldi hins 4. dags, er viö