Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 24
22
4-to, og ritaSi eg hana alla 3 síöustu skólaár mín
(1883—1886) og meðan eg var í prestaskólanum
(1886—j888). Þá er eg var í 3. og 4. bekk (1882—
1884) hafði eg auk þess í hjáverkum samning
registurs yfir 1. bindi Sýslumannaævanna meö
aöstoö Magnúsar Bl. Jónssonar, sambekkings míns,
og var þaö prentaö 1884. Var það illt verk og afar
seinunniö eins og allar registursgerðir og tók af-
armikinn tíma frá lestri skyldunámsgreina í skólan-
um. Enn fremur ritaði eg nokkrar greinar, er birt-
ust í blöðunum, Þjóðólfi, Isafold og Fjallkonunni, á
árunum 1882—1883, þar á meðal 2 greinar um Bók-
menntafélagið og starfsemi þess. í félagslífi skóla-
pilta tók eg nokkurn þátt og ritaði hitt og þetta
í skólablaðið, en misjafnlega var það merkt, eins og
gengur og gerist. Þá er eg var í 4. bekk (1884),
stakk eg upp á því, að stúdentar frá skólanum rit-
uðu ævisögur sínar, þá er þeir útskrifuðust, og
helzt, að þeir gæfu mynd af sér, sem fylgdi ævisög-
unuin, er allar skyldu færast í bók. Var vel í þetta
tekið, en framkvæmdirnar urðu minni, því að aðeins
5 stúdentar (af 21) frá 1885 rituðu ævisögur sínar
(Jón Steingrímsson, Adolf Niclassen, Einar Frið-
geirsson, Þórður Ólafsson og Jón Arason), en að-
eins 7 (af 22) frá 1886, (eg (H.Þ.), Árni B. Gísla-
son, Jón Helgason, Jóhannes Jóhannesson, Jóhann-
es L. L. Jóhannsson, Kjartan Helgason og Jón Guð-
mundsson), þrátt fyrir skrifleg loforð allra bekkjar-
bræðra minna veturinn áður. Og svo féll þetta þvi
miður alveg niður. En þessar fáu stúdentaævisög-
ur eru enn, í vörzlum mínum eins og til menja um
þessa ófullkomnu og endasleppu byrjun á nytsemd-
arverki fyrir eptirkomendurna (sbr. vígsluævisögur
presta). — Áður en eg skilst við skólaveru mína,
vil eg þakkja bekkjarbræðrum mínum fyrir ágæta